Inntökuskilyrði

Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Við mat á umsóknum er tekið tillit til einkunna á stúdentsprófi, frekari menntunar, starfsreynslu ofl. Umsækjendur eru því hvattir til að gera grein fyrir öllu því sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar.

Hvað þarf að fylgja með umsókn?

  • Staðfestu (stimpluðu) afriti af stúdentsprófi þarf að skila á pappírsformi í afgreiðslu HR. Skönnuð skírteini eru ekki tekin gild.

  • Meðmælabréf  (kostur ekki skylda)

Ef umsækjandi hefur lokið námskeiðum á háskólastigi er hægt að sækja um mat á fyrra námi. Reglur og eyðublað vegna mats á fyrra námi.


 

Umsagnir nemenda

Rakel Sölvadóttir

„Námið heillaði mig mjög mikið, ekki síst áherslan sem lögð er á þverfaglegt nám í HR. Aðstaðan, umhverfið og uppbygging á rannsóknarsetrum, auk stuðnings við nýsköpun er ástæða þess að ég kaus að stunda sálfræði við HR."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica