Nefndir og ráð

Forstöðumaður

Bryndís Björk Ásgeirsdóttir er forstöðumaður BSc-náms í sálfræði. Hún starfar í umboði deildarforseta og er ábyrg fyrir námsbrautinni. Forstöðumaður heldur fundi í námsstjórn og gæðaráði BSc-náms.

Námsstjórn

Í námsstjórn sitja þrír fastir kennarar sálfræðinnar, forstöðumaður námsins og verkefnastjóri. Fundargerðir ráðsins eru aðgengilegar öðrum starfsmönnum deildarinnar. Námsstjórn er ábyrg fyrir eftirtöldum atriðum:

  • Uppbyggingu námsins, þróun þess og gæðamati.
  • Inntöku nýnema og mati á fyrra námi þeirra.
  • Nemendaskiptum við aðra háskóla á BSc-stigi.
  • Framvindu- og prófareglum.

Gæðaráð

Í gæðaráði eiga sæti forstöðumaður BSc-náms, verkefnastjóri  BSc-náms og einn trúnaðarmaður nemenda á hverju námsári. Gæðaráð er vettvangur umræðna og skoðanaskipta um gæði kennslu og framkvæmd námskeiða. Forstöðumaður skal kalla saman fund að minnsta kosti einu sinni á önn en trúnaðarmenn geta óskað eftir fundi þegar þörf krefur.

Ráðgjafarnefnd

Í ráðgjafarnefnd BSc-náms í sálfræði sitja fjórir sérfræðingar frá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum á Íslandi. Ráðgjafarnefndin er til ráðgjafar um ýmis mál sem snúa að þróun og uppbyggingu  námsins.




 

Umsagnir nemenda

Richard

"When I started the BSc program in psychology I was surprised by the fact that reading several hundred pages of challenging text could be so much fun. In my opinion feedback and a good communication between student and teacher are vital in order to reach the optimal learning experience."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica