Reglur

Náms- og framvindureglur

Nemendur fylgja þeim reglum sem eru við lýði það ár sem þeir innritast. Ef nemandi er endurinnritaður þá gilda um hann þær reglur sem eru í gildi við endurinnritun.

Prófgráður og forkröfur

Sálfræðinám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík veitir prófgráðuna BSc í sálfræði. Gráðan er veitt að loknu 180 ECTS námi við deildina með fullnægjandi árangri. Nemendur eru valdir í námið eftir frammistöðu í námi á framhalds- og háskólastigi. Þá verður tekið tillit til annarra þátta svo sem umsagna sem og greinargerðar frá nemanda sjálfum. Gert er ráð fyrir því að nemendur sem fá inngöngu í BSc-námið í sálfræði við Háskólann í Reykjavík hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Þá er gert ráð fyrir því að nemendur hafi gott vald á íslensku og ensku.

Uppbygging náms

180 ECTS nám í sálfræði. Einingafjöldinn skiptist á eftirfarandi hátt:
150 ECTS skyldunámskeið í sálfræði:
 - 120 ECTS kjarnanámskeið (17 námskeið, hvert um sig 6 ECTS auk 18 ECTS  BSc-rannsóknarverkefni).
  - 30 ECTS sérhæfð námskeið í sálfræði (fimm námskeið, hvert um sig 6 ECTS).
30 ECTS valnámskeið (fimm námskeið, hvert um sig 6 ECTS).

Kennsluhættir og vinnubrögð

Námstíminn er þrjú ár og fer námið fram í Háskólanum í Reykjavík. Námskeið byggjast á almennum fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum eftir ákvörðun umsjónarkennara hverju sinni. Þá fara nemendur í vettvangsnám, t.d. á heilbrigðisstofnanir, í skóla og í fyrirtæki.

Í undantekningartilvikum getur forstöðumaður BSc-náms í sálfræði ákveðið að tiltekið námskeið skuli ekki kennt eða fyrirkomulagi kennslu breytt. Þannig eru námskeiðslýsingar og stundaskrár birtar með fyrirvara um síðari breytingar. Námskeið eru í umsjón fastra kennara deildarinnar eftir ákvörðun forstöðumanns námsins. Forstöðumanni er þó heimilt að fela stundakennara umsjón námskeiðs vegna tímabundinna anna fastra kennara.

Námsframvinda

Einkunnir eru gefnar í tölum á kvarðanum 0 - 10. Lágmarkseinkunn í hverju námskeiði er 5. Að öllu jöfnu er nemanda heimilt að fara yfir á annað námsár ef hann hefur lokið a.m.k. 48 ECTS á fyrsta námsári með meðaleinkunn 6,0 eða hærri. Til að hefja nám á þriðja námsári þarf nemandi að hafa lokið öllum námsgreinum á fyrsta námsári og a.m.k. 36 ECTS á öðru námsári, með meðaleinkunn 6,0 eða hærri (samanlagt af fyrsta og öðru námsári). Nemandi skal hafa lokið BSc-prófi í síðasta lagi fimm árum eftir síðustu innritun á fyrsta námsár nema námsmatsnefnd hafi veitt honum leyfi frá námi. Lengist þá framangreindur tímafrestur sem leyfinu nemur.

Hlutanám í BSc í sálfræði

Búi nemandi við sérstakar aðstæður sem koma í veg fyrir að hann geti stundað fullt nám, er í undantekningartilvikum gefinn kostur á hlutanámi í BSc námi í sálfræði við HR. Sækja skal sérstaklega um slíkt námsfyrirkomulag til verkefnastjóra námsins. Beiðninni skulu fylgja fullnægjandi gögn sem sýna að gildar ástæður séu fyrir henni. Með beiðni um hlutanám ber jafnframt að skila námsáætlun svo unnt sé að meta hvernig námi umsækjanda verður háttað og hvort áætlunin sé raunhæf. Meðal þeirra ástæðna sem réttlætt geta slíkt hlutanám, eru t.d. erfiðar aðstæður vegna fjárhags eða veikinda. Leyfi til hlutanáms má veita með skilyrðum. Nemandi í hlutanámi skal hafa lokið BSc-prófi í síðasta lagi átta árum eftir síðustu innritun á fyrsta námsár nema námsmatsnefnd hafi veitt honum leyfi frá námi. Lengist þá framangreindur tímafrestur sem leyfinu nemur. Um námsframvindu milli námsára gilda sömu reglur fyrir nemendur í hlutanámi og nemendur í fullu námi (sjá kafla 4 hér að ofan).

Forkröfur fyrir námskeið

Forkröfur fyrir einstök námskeið koma fram í kennsluskrá sem má finna í yfirliti yfir skipulag náms.

Hámarksfjöldi eininga sem nemandi getur tekið

Nemandi í BSc-námi í sálfræði getur skráð sig í 36 ECTS á önn að hámarki. Heimilt er að sækja um undanþágu til verkefnastjóra námsins, en slík undanþága er aðeins veitt hafi nemandi meðaleinkunn 7,5 eða hærri.

Reglur um próftöku

Nemendum er heimilt að sitja hvert námskeið tvisvar og þreyta þau próf sem í boði eru í bæði skiptin. Að sitja námskeið þýðir að nemandi er skráður í námskeið eftir að frestur um úrsögn er liðinn. Standist nemandi ekki námskeið eftir setu í annað sinn, telst hann fallinn úr námi. Ber honum þá að sækja um endurinnritun í námið vilji hann stunda námið áfram (sjá 9. grein fyrir neðan). Nemendur sem þurfa að sitja námskeið í annað sinn þurfa einnig að skila öllum verkefnum námskeiðsins að nýju sem þýðir að nemendur geta ekki fengið verkefni metin á milli anna. Nánari reglur um próf og próftóku má sjá í náms- og prófareglum HR.

Um vinnubrögð, nám og próftöku nemenda í BSc-námi í sálfræði gilda eftirfarandi reglur og viðurlög skólans: 

Reglur um verkefnavinnu
Náms- og prófareglur HR
Siðareglur HR

Endurinnritun

Uppfylli nemandi ekki framangreind lágmarksskilyrði um námsframvindu samkvæmt reglum deildarinnar, fellur réttur hans til frekara náms við deildina niður. Nemandi getur þó sótt um endurinnritun í námið. Umsókn um endurinnritun skal vera skrifleg og skal send til verkefnastjóra námsins. Sé nemanda veitt slík heimild heldur hann, sé þess óskað, einungis þeim námskeiðum sem hann hefur lokið með einkunn 6,0 eða hærri. Sama gildir um nemendur sem hafa hætt námi og kjósa að hefja nám að nýju. Viðskiptadeild áskilur sér þann rétt að synja nemendum um endurinnritun.

Námshlé

Nemandi getur sótt um að gera hlé á námi sínu. Umsóknina skal senda til verkefnastjóra námsins. Beiðninni skulu fylgja fullnægjandi gögn sem sýna að gildar ástæður séu fyrir henni. Meðal þeirra ástæðna sem réttlætt geta námshlé eru t.d. barnsburður eða veikindi. Með umsókn þarf t.d. að berast læknisvottorð ef sótt er um námshlé vegna veikinda. Leyfi til námshlés má veita með skilyrðum. Hámarkstími námshlés er eitt ár. Óski nemandi eftir lengra leyfi frá námi þarf hann að sækja um það sérstaklega til verkefnastjóra. Beiðni um framlengingu námshlés skulu fylgja fullnægjandi gögn sem sýna að gildar ástæður séu fyrir slíkri framlengingu.


 



 

Umsagnir nemenda

Erla Guðmundsdóttir

„Það besta við sálfræðina er hversu námið er skemmtilegt og vel skipulagt. Kennslan einkennist af miklum metnaði kennara. Þá finnst mér frábært að allir sálfræðinemar fái tækifæri til að fara í vettvangsnám."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica