Spurt og svarað

Hvað er sálfræði?

Sálfræði_5Sálfræði fæst við athuganir á hugsun, hegðun og tilfinningum fólks. Sálfræðingar leitast við að svara fjölbreytilegum spurningum. Fáein dæmi eru eftirfarandi: Hvernig lærir fólk, hvernig virkar minni og af hverju gleymum við? Af hverju leika börn sér? Hvað gerir fólk að góðum leiðtogum? Engar tvær manneskjur hafa sama persónuleika – hvað er persónuleiki? Hvað er greind og hvernig er hún mæld? Af hverju verða börn innan sömu fjölskyldu eins ólíkir einstaklingar og raun ber vitni? Af hverju upplifum við óþægilegar tilfinningar eins og ótta og depurð, þjóna þessar tilfinningar tilgangi og hvernig getum við komið í veg fyrir að þær hafi neikvæð áhrif á líf okkar og heilsufar? Við upplifum öll streitu af og til – hvað er streita, hvernig hefur hún áhrif á andlega og líkamlega heilsu og hvernig er unnt að stjórna henni? Af hverju misnotar sumt fólk áfengi og önnur vímuefni? Við erum öll á móti glæpum – hversu mikinn árangur bera refsingar í að stöðva glæpi? Margt fólk, bæði börn og fullorðnir, horfir á sjónvarpsþætti sem innihalda ofbeldi – eykur þetta líkur á ofbeldi í daglegu lífi fólks? Hvað eru geðsjúkdómar og hvernig er unnt að sporna við þeim og vinna með þá? Hvað eru fordómar og hvernig er hægt að vinna bug á þeim? Af þessu má sjá að fyrir hendi eru ótal spurningar sem varða mannlega hegðun og reynslu.

Eru góðir atvinnumöguleikar innan sálfræðinnar?

Sálfræði_9Atvinnumöguleikar þeirra sem útskrifast úr sálfræði eru góðir. Rannsóknir víða um heim, sérstaklega í Evrópu, Norður Ameríku, og Asíu, sýna að eftirspurn eftir sálfræðingum mun halda áfram að vaxa í fyrirsjáanlegri framtíð.

Veitir BSc námið starfsréttindi?

Til að svara þessari spurningu verður að gera greinarmun milli þess að starfa sem sálfræðingur og þess að nota BSc gráðuna til að starfa innan annarra greina en sálfræði.

Sálfræði_12Í mörgum löndum, þ.á.m. Íslandi, gilda strangar reglur um starfsemi sálfræðinga. Lágmarks menntunarkröfur eru gerðar til þeirra sem starfa til að mynda sem klínískir sálfræðingar, ráðgjafarsálfræðingar, menntasálfræðingar eða vinnusálfræðingar. Í þessum tilvikum þarf  að minnsta kosti tveggja ára sérnám á meistarastigi til viðbótar við grunnnám (líkt og BSc gráðu í sálfræði). Ef nemandi velur að fara ekki í sérnám í sálfræði er BSc gráðan vel metin í margvíslegum störfum, þar á meðal í kennslu, hagnýtum rannsóknum, heilsueflingu og forvörnum, blaðamennsku, markaðssetningu, iðnaði og viðskiptum, upplýsingatækni og opinberum störfum.

 

Er BSc gráðan í sálfræði viðurkennd við aðra háskóla og í öðrum löndum?

Sálfræði_3Hvert land hefur sínar eigin reglur varðandi viðurkenningu á menntun og hæfni sem aflað er erlendis. BSc námið í sálfræði við HR er sérstaklega hannað til að koma til móts við ströngustu alþjóðlegar kröfur.

 


 

Umsagnir nemenda

Erla Guðmundsdóttir

„Það besta við sálfræðina er hversu námið er skemmtilegt og vel skipulagt. Kennslan einkennist af miklum metnaði kennara. Þá finnst mér frábært að allir sálfræðinemar fái tækifæri til að fara í vettvangsnám."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica