„Ég valdi sálfræði við Háskólann í Reykjavík vegna þess að deildin er lítil sem gerir námið persónulegra og auðveldar aðgengi að kennurum. Námið er sett upp á áhugaverðan hátt og gefur færi á að kynnast mismunandi snertiflötum sálfræðinnar. Álagið er frekar jafnt og þétt yfir önnina þar sem nóg er af verkefnaskilum og prófum, sem hjálpa til við að halda manni við námsefnið. Það kemur sér vel þegar líður að lokaprófum því þá þarf aðeins að rifja upp það sem búið er að vinna með alla önnina en ekki læra allt frá grunni, korteri fyrir próf. Námið er ekki aðeins skemmtilegt heldur er alltaf nóg um að vera í félagslífinu sem kryddar skólalífið. Ég mæli hiklaust með sálfræði í HR og sé ekki eftir mínu vali.“


