„Mér til mikillar ánægju var Háskólinn í Reykjavík að hefja kennslu í sálfræði haustið 2009. Námið heillaði mig mjög mikið, ekki síst áherslan sem lögð er á þverfaglegt nám í HR . Aðstaðan, umhverfið og uppbygging á rannsóknarsetrum, auk stuðnings við nýsköpun er ástæða þess að ég kaus að stunda sálfræði við HR. Það eru forréttindi að fá að vera í hópi þeirra fyrstu sem leggja stund á nám í sálfræði við HR."


