Vettvangsnám

Fjölbreyttar kennsluaðferðirNemendur taka hluta af námi sínu á vettvangi. Það er hugsað sem kennsluaðferð sem felur í sér að nemendur taki þátt í námi úti í samfélaginu með það fyrir augum að öðlast aukna samfélagslega ábyrgð og þekkingu.

Nemendur hljóta leiðsögn, bæði frá fagfólki á vettvangi sem og frá kennurum námskeiðsins og hittast reglulega í umræðuhópum.  Að námskeiði loknu eiga nemendur að hafa öðlast skilning á hvernig er að vinna við fagið og tengja það við fræðileg viðfangsefni sálfræðinnar.

Vettvangsnámið fer fram á fjölbreyttum sviðum svo sem meðal barna, ungmenna, eldri borgara og fólks með sérþarfir.

Dæmi um staði í vettvangsnámi:

  • Landspítali-háskólasjúkrahús (Landakot, Grensásdeild og Barna- og unglingageðdeild)
  • Fangelsismálastofnun ríkisins
  • Svæðiskrifstofa málefna fatlaðra
  • Rauði kross Íslands
  • Barnahús
  • Reykjalundur
  • Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
  • Grunnskólar og leikskólar
  • Capacent (samstarfsverkefni við Rauða kross Íslands)



 

Umsagnir nemenda

Rakel Sölvadóttir

„Námið heillaði mig mjög mikið, ekki síst áherslan sem lögð er á þverfaglegt nám í HR. Aðstaðan, umhverfið og uppbygging á rannsóknarsetrum, auk stuðnings við nýsköpun er ástæða þess að ég kaus að stunda sálfræði við HR."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica