Ertu að spá í HR?
Kynntu þér námleiðir í grunnnámi og í meistaranámi. Að auki er boðið upp á nám í frumgreinadeild og í Opna háskólanum. Opnað er fyrir almennar umsóknir í febrúar ár hvert og er umsóknarfrestur til 5. júní fyrir nám á haustönn og 5. desember fyrir nám á vorönn.
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf eða sambærilegt. Inntökuskilyrði eru þó breytileg eftir deildum og er nánari upplýsingar að finna hjá deildum skólans og undir inntökuskilyrði og fylgigögn.
Námsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafar annast náms- og starfsráðgjöf. Sjá nánar um viðtalstíma.
Styrkir
Nemendum við Háskólann í Reykjavík gefst kostur á að sækja um ýmsa styrki, annað hvort í formi niðurfelldra skólagjalda, eða að fá hluta skólagjalda niðurfelld. Einnig eru peningastyrkir í boði fyrir nemendur. Sjá upplýsingar um styrki.
Stúdentafélag HR
Allir nemendur Háskólans í Reykjavík eru meðlimir í SFHR og eru félagsgjöld engin. Hver deild við skólann hefur sitt hagsmunafélag sem stendur vörð um hagsmuni félagsmanna sinna.
Skiptinám við erlenda háskóla
Háskólinn í Reykjavík er í samstarfi við háskóla í Evrópu innan Erasmus-áætlunarinnar, Nordplus-áætlunarinnar og er jafnframt með tvíhliða samninga við háskóla utan Evrópu. Með þessum samningum gefst nemendum kostur á að taka eina eða tvær annir við samstarfsskóla HR og fá námið í gestskólanum metið sem hluta af námi sínu við Háskólann í Reykjavík. Sjá nánar.
Skólagjöld eru lánshæf hjá LÍN
Allt nám í Háskólanum í Reykjavík (að Opna háskólanum undanskildum) er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Sjá nánar um skólagjöld.
Atvinnuþjónusta HR
Hlutverk Atvinnuþjónustunnar er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að finna hæfa framtíðarstarfsmenn í hópi núverandi og útskrifaðra nemenda skólans.
Húsnæðismál
Háskólinn í Reykjavík er aðili að Byggingafélagi námsmanna. Aðilar að SFHR eru sjálfkrafa aðilar að Byggingarfélagi námsmanna (BN) og Bandalagi íslenskra námsmanna (BÍSN). BN sér um byggingu og viðhald námsmannaíbúða sem standa nemendum HR til boða á nemendagörðum sem staðsettir eru víðsvegar um borgina.
Fyrirtæki í húsinu
Í húsnæði HR er einnig að finna Bóksölu stúdenta, Te & kaffi, World Class og Málið.
