Forsetastyrkir
Allar deildir skólans veita forsetastyrki til framúrskarandi nemenda í meistaranámi. Handhöfum gefst kostur á að greiða grunnnámsskólagjöld í allt að 4 annir. Umsókn um meistaranám jafngildir styrkumsókn.
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem sækja um fullt meistaranám, forsetastyrk sem felur í sér niðurfellingu hluta skólagjalda þannig að nemandi greiðir einungis skólagjöld grunnnáms meðan á meistaranámi stendur (3-4 annir).
Umsókn um að hefja fullt meistaranám er jafnframt umsókn um ofangreindan styrk.
Þeir sem lokið hafa grunnnámi með góðum árangri eiga kost á styrknum.
Markmið með styrkveitingunni er að hvetja framúrskarandi námsmenn til metnaðarfulls náms og til að auðvelda þeim að helga sig náminu af krafti. Forsetastyrkurinn er veittur á haustönn og vorönn þar sem það á við.
