Fjarnám er góður valkostur fyrir einstaklinga sem vilja stunda fullgilt nám í háskóla en hafa ekki kost á að sækja nám í dagskóla. Námið hentar einnig vel fólki sem statt er utan höfuðborgarsvæðisins. Sífellt meiri kröfur eru gerðar til menntunar og fleiri og fleiri kjósa að afla sér háskólamenntunar á sviði upplýsingatækni. Háskólamenntun í tölvunarfræði er fjárfesting sem getur skilað þér betra starfi, hærri launum og meiri starfsánægju.
Hægt er að ljúka 120 ECTS diplomagráðu í kerfisfræði-fjarnámi á mismunandi hraða. Leið 1 er að stunda fullt nám og ljúka því á 2 árum. Leið 2 að stunda námið á rúmlega hálfum hraða og ljúka því á þremur árum. Fjarnámið er algjörlega sambærilegt við námið í dagskóla. Gerðar eru sömu kröfur til nemenda í fjarnámi og nemenda í dagskóla og þreyta nemendur sömu próf.
Námið nýtist að fullu kjósi nemandi að skipta yfir í dagskóla. Nemendur geta ákveðið síðar að halda áfram og ljúka BSc prófi í tölvunarfræði en þurfa þá að bæta við sig einu námsári (60 ECTS).
Fyrirkomulag kennslu
Í fjarnámi leggur kennari fyrir verkefni, sér um umræðuþræði og er í sambandi við nemendur. Nemendur sækja hljóðfyrirlestra á vef deildarinnar. Báðar annir eru 15 vikur en vorönnin skiptist í 12+3 vikur. Einnig er boðið upp á sumarönn á hverju sumri og er hún sex vikur.
Námskeið í staðarnámi
Allir skylduáfangar í Kerfisfræði-fjarnámi eru kenndir í fjarnámi fyrir utan námskeiðið Verklegt námskeið en Verklegt námskeið er kennt á 4. önn.
Þar sem námskeiðið er full vinna í þrjár vikur er nauðsynlegt að nemendur geti tekið þessar þrjár vikur frá þegar svo ber við. Vinna við lokaverkefni stendur yfir í fjóra mánuði í lok námsins.
Rafrænt kennsluumhverfi
Námið fer fram með aðstoð rafræns námsumhverfis á innra vef skólans, MySchool, en þar er efninu dreift, nemendur skila af sér verkefnum og eiga í samskiptum við kennara og samnemendur. Hluti af kennsluefninu eru hljóðfyrirlestrar sem eru ýmist fyrirlestrar teknir upp í kennslustundum í staðarnámi eða teknir sérstaklega upp og geta nemendur sótt þá og hlustað á þegar þeim hentar. Uppbygging námskeiðanna er mismunandi en í öllum er þó nokkur verkefnavinna og getur verið um að ræða einstaklings- eða hópverkefni.

