Valnámskeið

Allir kerfisfræðinemendur hafa 12 ECTS eininga valfrelsi utan deildarinnar líkt og í BSc náminu.

Þegar námskeið eru tekin í vali utan tölvunarfræðideildar ber að gæta þess að undanfarareglum viðkomandi deildar sé fylgt og að námsefni skarist ekki við aðrar einingar teknar til prófgráðu.

Samþykki Námsmatsnefndar þarf vegna námskeiða í öðrum deildum á sviði tölvunarfræði, upplýsingatækni eða stærðfræði. Athugið sérstaklega að námskeiðin Hagnýt stærðfræði, Hagnýt upplýsingatækni og Hagnýt tölfræði 1 (í Viðskiptafræðideild) og Stafræn tækni (í Tækni- og Verkfræðideild) er ekki hægt að taka í vali vegna skörunar við skyldunámskeið í tölvunarfræði.

Valnámskeið í Viðskiptafræðideild - HMV

Viðskiptafræðideild HR býður upp á námskeið í HMV sem nemendur í Kerfisfræði HMV geta sótt. Einnig er boðið upp á sumarönn fyrir HMV nemendur í Viðskiptafræðideild. Fleiri upplýsingar um HMV námið í Viðskiptafræðideild má finna hér. Upplýsingar um námskeið í HMV í Viðskiptafræðideild má finna í kennsluskrá með því að velja Viðskiptafræðideild undir deild og svo BSc í Viðskiptafræði - HMV  undir braut.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica