Straumlína í upplýsingatækni - Fyrirlestur á vegum Agile Hópsins og Tölvunarfræðideildar HR

Fimmtudaginn 1. október kl 12:00 stendur Agile hópurinn, í samstarfi við Tölvunarfræðideild HR, fyrir fyrirlestrinum "Straumlína í upplýsingatækni". Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu O-131a í Háskólanum í Reykjavík Ofanleiti 2. 

Fyrirlesari er Pétur Orri Sæmundsson og einn stofnenda Spretts, eina fyrirtækisins á Íslandi sem sérhæfir sig í Agile og Lean upplýsingatækni. Pétur er brautryðjandi í beitingu Agile aðferða á Íslandi og hefur 10 ára reynslu í upplýsingatækni þar sem hann hefur unnið bæði sem forritari og stjórnandi. 

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.  Samlokur og gos eins og venjulega. Nauðsynlegt er að skrá sig með því að senda póst á lean2009@agile.is.

Agile aðferðir voru upphaflega hannaðar fyrir lítil hugbúnaðarteymi til þess að ná meiri árangri.  Þegar aðferðirnar höfðu sannað sig í teymavinnu fóru fyrirtæki að velta því fyrir sér hvernig væri hægt að "skala" aðferðirnar, þ.e. beita þeim í stærri og stærri verkefnum og jafnvel á allt fyrirtækið.  Síðastliðin ár hefur þróunin í Agile væðingu fyrirtækja (Enterprise Agility) verið hröð og í langflestum tilvikum eru fyrirtækin að nota fyrirtækjaútfærslu af Scrum.

Lean hugmyndir (Toyota kerfið) höfðu á sínum tíma mikil áhrif mótun Scrum og því kemur ekki á óvart að í fyrirtækjaútfærslum, sem kalla á lausnir á nýjum vandamálum, er mikið leitað í gnægtarbrunn Lean hugmynda og aðferða. Í fyrirlestrinum ætlar Pétur Orri Sæmundsen að kynna nokkrar Lean hugmyndir og hvernig hægt er að beita þeim í upplýsingatækni.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica