Forritunarkeppni framhaldsskólanema
Nærri níutíu framhaldsskólanemar taka þátt í árlegri forritunarkeppni framhaldsskólanna í Háskólanum í Reykjavík í dag, laugardag, 27. mars. Markmiðið er að efla og örva forritunaráhuga íslenskra ungmenna.
Keppendur koma frá flestum framhaldsskólum landsins og raða þeir sér niður í 29 lið. Í keppninni reynir á kunnáttu nemenda í forritun og sköpunargleði þeirra.
Keppnin fer fram í húsakynnum HR við Nauthólsvík og hefst hún kl. 9. Hún stendur fram á kvöld og er ráðgert að úrslit verði kynnt kl.19.30.
Keppninni er skipt í þrjár deildir: Alpha-deild, Beta-deild og Delta-deild. Keppendur raða sér í deildirnar eftir kunnáttu í forritun.
Tölvunarfræðideild HR stendur að keppninni með stuðningi Nýherja og CCP. Sigurvegarar í Alpha-deild fá niðurfelld skólagjöld hjá tölvunarfræðideild HR í eina önn en öll önnur verðlaun eru veitt af Nýherja. Þar má nefna myndavélar, minnislykla og heyrnartól.

