Forritunarkeppni framhaldsskólanna verður haldin 16. mars
Forritunarkeppnin er keppni fyrir alla nemendur í framhaldsskólum sem hafa áhuga á hönnun, forritun og tölvum.
Keppnin fer fram laugardaginn 16. mars í Háskólanum í Reykjavík. Föstudaginn 15. mars munu keppendur hittast í HR þar sem fyrirkomulag keppninnar er skýrt og þeir fá úthlutað vinnuaðstöðu. Þar gefst einnig gott tækifæri til að kynnast öðrum keppendum. Laugardaginn 16. mars hittast keppendur kl. 08:00 og fá sér morgunmat. Keppnin sjálf hefst kl. 9:00 og stendur fram á kvöld.
