BSc í hugbúnaðarverkfræði

CCP mynd nemendur

Hugbúnaðarverkfræðinám byggist á menntun í tölvunarfræði, stærðfræði og undirstöðugreinum verkfræði. Hagnýt þjálfun byggist á nýjustu aðferðum hugbúnaðarfræði, verkefnastjórnunar og gæðastýringar, ásamt raunhæfum hugbúnaðarverkefnum sem unnin eru í samvinnu við atvinnulífið.

Inntökuskilyrði

Stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Gerðar eru kröfur um að nemendur hafi haldgóða þekkingu á stærð­fræði, raungreinum, íslensku og ensku. Æskilegur undirbúningur fyrir nám í hugbúnaðarverkfræði er að hafa lokið a.m.k. 21 einingu í stærðfræði og 6 einingum í eðlis­fræði. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt.

Starfsnám í Bandaríkjunum

Uni of MarylandNemendur í BSc í hugbúnaðarverkfræði hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við Háskólann í Maryland (Fraunhofer Center for Experimental Software Engineering) og fengið vinnuna metna til eininga. Við Fraunhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu.

Nemendur fá borguð laun meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði í senn. Frekari upplýsingar má nálgast hér.

 

 




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica