Skipulag náms BSc í hugbúnaðarverkfræði

Skipulag náms

Hugbúnaðarverkfræði er þverfaglegt nám sem sameinar þekkingu á tölvutækni og verkfræði. Námið er skipulagt í samvinnu tölvunarfræðideildar og tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Líkt og í öðrum verkfræðigreinum samanstendur BSc námið af almennum kjarna, sviðskjarna og valfögum.

Nemandi þarf að ljúka 180 ECTS einingum til BS-prófs í hugbúnaðarverkfræði. Þar af eru 132 ECTS einingar í  kjarnafögum BSc-námsins.  Nemendum ber að taka a.m.k. 30 ECTS einingar í vali innan tölvunarfræði- og verkfræðideildar en geta tekið allt að 18 ECTS einingar í vali utan deildanna. Almennt er miðað við að slík heimild sé veitt svo lengi sem tilgreint námskeiðsval sé á háskólastigi, uppfylli undanfarareglur viðkomandi deildar, og námsefni skarist ekki við aðrar einingar teknar til prófgráðu. Hægt er að sjá námskeið í kennsluskrá og lesa meira um reglur fyrir valnámskeið hér. Athugið að þessi uppröðun er sett upp með fyrirvara um breytingar.

 Kjarni (132 ECTS)

Inngangur að tölvunarfræði
Forritun
Strjál stærðfræði fyrir verkfræðinga                                               
Stærðfræði I
Gagnaskipan
Gagnasafnsfræði

Vefforritun
Stærðfræði II
Greining og hönnun hugbúnaðar
Verklegt námskeið 

Reiknirit

Tölvuhögun
Tölfræði

Hugbúnaðarfræði I
Forritunarmál
Línuleg algebra
Töluleg greining
Stöðuvélar og reiknanleiki eða Þýðendur
Hugbúnaðarfræði II
Stýrikerfi og netkerfi
Eðlisfræði I
Aðgerðagreining



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica