Valnámskeið BSc í hugbúnaðarverkfræði

Valnámskeið

Nemendum ber að taka a.m.k. 30 ECTS einingar í vali innan tölvunarfræði- og verkfræðideildar og allt að 18 ECTS einingar í vali utan deildanna. Lýsingar á námskeiðum má finna í kennsluskrá HR.

Þegar námskeið eru tekin í vali utan tölvunarfræðideildar og tækni- og verkfræðideildar ber að gæta þess að undanfarareglum viðkomandi deildar sé fylgt og að námsefni skarist ekki við aðrar einingar teknar til prófgráðu.

Samþykki Námsmatsnefndar þarf vegna námskeiða í öðrum deildum á sviði tölvunarfræði, upplýsingatækni eða stærðfræði. Athugið sérstaklega að námskeiðin Hagnýt stærðfræði, Hagnýt upplýsingatækni og Hagnýt tölfræði 1 (í viðskiptafræðideild) og Stafræn tækni (í tækni- og verkfræðideild) er ekki hægt að taka í vali vegna skörunar við skyldunámskeið í tölvunarfræði.

Listi yfir valnámskeið í boði hjá tölvunarfræðideild vorið 2011

  • Stærðfræðileg forritun, 6 ECTS
  • Vefforritun, 6 ECTS
  • Þriggja vikna námskeið, 6 ECTS
  • Hönnun og greining reiknirita, 6 ECTS
  • Afköst gagnasafnskerfa, 6 ECTS
  • Upplýsinga- og samskiptatækni í skólakerfinu, 6 ECTS
  • Þýðendur, 6 ECTS
  • Ný tækni, 6 ECTS
  • Gervigreind, 6 ECTS
  • Lokaverkefni, 12 ECTS

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica