BS í tölvunarfræði
Tölvunarfræðideild er í virku alþjóðlegu samstarfi,
bæði í kennslu og rannsóknum. Jafnframt vinnur deildin náið með atvinnulífinu, t.d. í formi lokaverkefna.
Tölvunarfræðingar eiga kost á mjög fjölbreytilegum störfum, enda skarast tölvunarfræði við margar greinar, s.s. stærðfræði, sálfræði, verkfræði, lífupplýsingafræði, viðskiptafræði o.fl.
Inntökuskilyrði
Stúdentspróf, frumgreinapróf úr HR eða sambærilegt próf. Við val á umsækjendum verður einnig horft til starfsreynslu eða frekara náms. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt.
Starfsnám í Bandaríkjunum
Nemendur í BSc í tölvunarfræði hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjanna í starfsnám við Háskólann í Maryland (Fraunhofer Center for Experimental Software Engineering) og fengið vinnuna metna til eininga. Við Fraunhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu.
Nemendur fá borguð laun meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði í senn. Frekari upplýsingar má nálgast hér.

