Áherslusviðið þróun tölvuleikja

Samstarf tölvunarfræðideildar HR og íslenska leikjaiðnaðarins

Til að styrkja og efla vaxtarmöguleika íslenska tölvuleikjaiðnaðarins, hefur tölvunarfræðideild HR farið í samstarf við leikjaiðnaðinn um kennslu og rannsóknir á sviði tölvuleikja.

IGI_blanda3

Þróun tölvuleikja

Áherslusviðið í leikjaþróun er hluti af B.Sc. námi í tölvunarfræði. Hún samanstendur af fimm námskeiðum, eða sem samsvarar einni önn í náminu.

Í þessu áherslusviði er lögð sérstök áhersla á ýmis grundvallaratriði sem liggja að baki flestum tölvuleikjum, til dæmis eru þar námskeið í tölvugrafík og tæknilegri uppbyggingu leikjaþjóna.

Að auki geta nemendur valið sér námskeið á sviði gervigreindar, samskipta manns og tölvu, gagnasafnskerfa, og hönnunar tölvuleikja

Allar nánari upplýsingar um nám í tölvunarfræði má finna á vefsíðum um grunnnámið. Skráning í nám í tölvunarfræði fer fram hér.

IGI samanstendur af eftirfarandi fyrirtækjum:

Betware, CADIA, CCP, Dexoris, Digital White Knight, Fancy Pants Global, Gogogic, MindGames, On the Rocks, Sauma, Ymir, Games4J, Leikjanet.is, Gameover.is, Game TíVí.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica