Tölvunarstærðfræði
BSc nám í tölvunarfstærðfræði er 180 ECTS eininga nám í dagskóla. Megináherslan er á almennan stærðfræðilegan bakgrunn, almennan tölvunarfræðibakgrunn og þjálfun í stærðfræðilegum aðferðum til að leysa vandamál sem tengjast hugbúnaðargerð.
Námið uppfyllir þær kröfur sem Félag tölvunarfræðinga gerir til náms í tölvunarfræði og nemendur sem útskrifast af þessari braut öðlast því starfsheitið tölvunarfræðingur.
Tölvunarstærðfræði hentar vel sem undirbúningur fyrir framhaldsnám í strjálli stærðfræði, tölvunarfræði, lífupplýsingafræði og öðrum skyldum greinum.

