Tölvunarstærðfræði er 3ja ára nám eða 180 ECTS einingar. Það skiptist í 132 ECTS í kjarna, 18 ECTS í bundnu vali og 30 ECTS í frjálsu vali. Af þessum 132 ECTS í kjarna eru 42 ECTS í því sem má kalla almenna tölvunarfræði, 54 ECTS í stærðfræði og 36 ECTS í fræðilegri tölvunarfræði.
Áherslur námsins:
- Almennur undirbúningur í stærðfræði: Nemendur taka stærðfræðinámskeið bæði í tölvunarfræðideild og tækni- og verkfræðideild eftir því sem við á.
- Almennur undirbúningur í tölvunarfræði: Nemendur taka námskeið í forritun, gagnaskipan og gagnasafnsfræði, og í stýri- og netkerfum.
- Þjálfun í að beita stærðfræðilegum aðferðum í hugbúnaðargerð: Nemendur taka námskeið í rauntímalíkönum,hönnun og greiningu reiknirita, o.fl.
- Þjálfun í að nota forritun til að styðja við tilgátur í stærðfræði og öðrum greinum, s.s. verkfræði og lífvísindum: Nemendur taka námskeið í stærðfræðilegri forritun o.fl.
Til að tryggja árangur í liðum 3. og 4. að ofan er nemendum boðið upp á að minnsta kosti þrjú námskeið með umfangsmiklum verkefnum. Meðal þess sem tekið er á eru greining og hönnun reiknirita, dulmálsfræði (e. cryptography) og líkön fyrir rauntímakerfi og sannprófun þeirra (e. software verification). Nánar um fyrirkomulag anna.
Áherslulínur
Nemendur geta valið sér áherslulínu innan gráðunnar. Í boði eru gervigreind og flókin kerfi, lífupplýsingafræði
(e. Bioinformatics), hugbúnaðarfræði og þróun tölvuleikja. Ekki er skylda að velja sér áherslulínu. Nánar um áherslulínur.
Valnámskeið
Þegar námskeið eru tekin í vali utan tölvunarfræðideildar ber að gæta þess að undanfarareglum viðkomandi deildar sé fylgt og að námsefni skarist ekki við aðrar einingar teknar til prófgráðu.
Samþykki Námsmatsnefndar þarf vegna námskeiða í öðrum deildum á sviði tölvunarfræði, upplýsingatækni eða stærðfræði. Athugið sérstaklega að námskeiðin Hagnýt stærðfræði, Hagnýt upplýsingatækni og Hagnýt tölfræði 1 (í viðskiptafræðideild) og Stafræn tækni (í tækni- og verkfræðideild) er ekki hægt að taka í vali vegna skörunar við skyldunámskeið í tölvunarfræði. Nánar um valnámskeið
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar er að finna hjá verkefnastjórum deildarinnar, Henning Arnór Úlfarsson, henningu@ru.is, eða Önnu Ingólfsdóttur, annai@ru.is.

