Leiðbeiningar um skil lokaverkefna í Skemmuna

Bókasafnið setur sér strangar verklagsreglur til þess að tryggja gæði birtingar og skráningar í Skemmunni. Bókasafnið samþykkir ekki birtingu á lokaverkefni í Skemmunni nema prentað eintak liggi fyrir og þar með ljóst að nemandi hafi náð tilskilinni einkunn. Berist bókasafninu ekki prentað eintak lokaverkefnis innan sex mánuða frá því nemandi setti verkefni sitt inn í Skemmuna, áskilur það sér rétt til þess að hafna birtingu á verkefninu og eyða rafræna eintakinu. Viðkomandi nemendur fá tölvuskeyti þar sem tilkynnt er að birtingu hafi verið hafnað og ástæðunni fyrir henni. Jafnframt er nemendum bent á að snúa sér til sinna deildarskrifstofa til þess að fá frekari skýringar.

Þóra Gylfadóttir er alltaf til viðtals og ráðlegginga fyrir nemendur og þegar líða fer að skilum mun bókasafn HR vera með örnámseið í kennslustofu bókasafnsins Ú102 og leiðbeina nemendum um skil. Allar upplýsingar er að finna á http://www.ru.is/skemman og í Skemmunni sjálfri á http://skemman.is/


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica