Skipulag náms

Dagskóli

Kerfisfræði í dagskóla er skipulagt sem fullt nám í tvö ár eða fjórar annir. Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi. Við val á umsækjendum verður einnig horft til starfsreynslu eða frekara náms. Nemendur sem ekki hafa nægilega bóklega undirstöðu eiga þess kost að sækja um undirbúningsnám hjá FrumgreinaMennt. Hér er hægt að sjá uppröðun námskeiða miðað við eðlilega námsframvindu nemenda.

Háskólanám með vinnu

Nemandi setur upp námskipulag miðað við tíma og getu en flestir ljúka náminu á fjórum árum meðfram vinnu. Hægt er að ljúka náminu á styttri eða lengri tíma en nemandi verður að passa upp á að uppfylla undanfara fyrir hvert námskeið og reglur um hámarks námstíma. Leita má til verkefnastjóra grunnnáms til að setja upp skynsamlegt námskipulag.

Fjarnám

Hægt er að ljúka 120 ECTS diplomagráðu í kerfisfræði-fjarnámi á mismunandi hraða. Leið 1 er að stunda fullt nám og ljúka því á 2 árum. Leið 2 að stunda námið á rúmlega hálfum hraða og ljúka því á þremur árum. Fjarnámið er algjörlega sambærilegt við námið í dagskóla. Gerðar eru sömu kröfur til nemenda í fjarnámi og nemenda í dagskóla og þreyta nemendur sömu próf.

Námið nýtist að fullu kjósi nemandi að skipta yfir í dagskóla. Nemendur geta ákveðið síðar að halda áfram og ljúka BSc prófi í tölvunarfræði en þurfa þá að bæta við sig einu námsári (60 ECTS). Í fjarnámi leggur kennari fyrir verkefni, sér um umræðuþræði og er í sambandi við nemendur. Nemendur sækja hljóðfyrirlestra á vef deildarinnar. Báðar annir eru 15 vikur en vorönnin skiptist í 12+3 vikur. Einnig er boðið upp á sumarönn á hverju sumri og er hún sex vikur.

Nemandi þarf að ljúka 120 ECTS einingum til kerfisfræðiprófs. Þar af þurfa að minnsta kosti 108 ECTS einingar að vera innan tölvunarfræðideildar, þ.m.t. öll kjarnafög kerfisfræðinámsins. Allir kerfisfræðinemendur hafa 12 ECTS eininga valfrelsi utan deildarinnar. Samskonar reglur gilda um námskeiðaval utan tölvunarfræðideildar og í BSc náminu. Nemandi vinnur lokaverkefni innan tölvunarfræðideildar. Fyrirkomulag anna má sjá hér.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica