Lokaverkefni

Lokaverkefni nemenda í tölvunarfræðideild eru tvenns konar, hefðbundin lokaverkefni og lokaverkefni með rannsóknaráherslu. Í lokaverkefnum fá nemendur úthlutað verkefniskennara, sem þeir hitta yfirleitt einu sinni í viku, og prófdómara, sem fylgist með framvindu verkefnisins nokkrum sinnum yfir verktímann (15 vikur). Mælt er með að nemendur taki lokaverkefni á 6. önn.

Hefðbundin lokaverkefni

Hefðbundin lokaverkefni gefa nemendum tækifæri á að vinna að raunverulegu hugbúnaðarverkefni í nánum tengslum við atvinnulífið. Nemendur vinna í 2-4 manna hópum, undir leiðsögn verkefniskennara, og fá aðstöðu hjá tilteknu fyrirtæki. Frumkvæði að verkefnum hefur á undanförnum árum bæði komið frá fyrirtækjum og nemendum. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. 78 ECTS einingum og verklegu námskeiði, Greiningu og hönnun hugbúnaðar og Hugbúnaðarfræði. Mælt er með að nemendur taki lokaverkefni á 6. önn.

Nemendur skrifa greinargóða verkefnisskýrslu sem þeir leggja fram með hugbúnaðinum. Lokaverkefni er metið af verkefniskennara og tveimur prófdómurum frá HR. Matið er byggt á ofangreindum þáttum og er framkvæmt í nokkrum þrepum meðan nemendur vinna að verkefninu. Verkefnisvinnunni lýkur formlega með opinni kynningu í skólanum.
 

Skýrari reglur eru nú um mat á einkunn fyrir lokaverkefnin, þar sem frumkvæði nemenda og nýbreytni í lokaverkefnunum er hluti af heildarmati. Til að styðja nemendur við að velja verkefni sem taka á nýbreytni, verða tillögur frá fyrirtækjunum flokkaðar  í 3 flokka af sérskipaðri lokaverkefnanefnd áður en nemendur velja, en þeir eru: mikil, miðlungs eða lítil nýbreytni. Nemendur munu eingöngu velja úr innsendum tillögum.

Lokaverkefni með rannsóknaráherslu

Lokaverkefni með rannsóknaráherslu gefa nemendum tækifæri til að kynnast rannsóknum á sviði tölvunarfræði og vinna í nánu samstarfi við fræðimenn skólans. Nemendur vinna 1-3 saman og fá oft aðstöðu í skólanum til verkefnavinnunnar. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. 138 ECTS einingum og öllum verklegum námskeiðum.

Nemendur skipuleggja verkefni í samvinnu við verkefniskennara, sem þau hitta venjulega einu sinni í viku, en deildin úthlutar prófdómara sem fylgist með framvindu verkefnisins nokkrum sinnum yfir verktímann. 

Skil í Skemmuna

Hér má sjá nánar leiðbeiningar um hvernig nemendur setja inn verkefni í Skemmuna


 


 

Hafa samband

Hallgrímur

Umsjónarmaður hefðbundinna lokaverkefna Hallgrímur Arnalds

Hrafn

Umsjónarmaður lokaverkefna með rannsóknaáherslu Hrafn Loftsson

Upplýsingar fyrir fyrirtæki

Vildu láta nemendur við tölvunarfræðideild HR vinna lokaverkefni í samstarfi við fyrirtækið þitt?

Hægt er að finna fleira upplýsingar hér

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica