Lokaverkefni 2008

Hefðbundin Lokaverkefni

Mælaborð kerfisstjórans

Mælaborð kerfisstjórans er upplýsingakerfi sem gerir stjórnendum tölvukerfa kleift að sjá stöðu netkerfa á einfaldan hátt. Það sækir reglulega gögn úr Active Directory og skráir í SQL gagnagrunn. Hannað var vefviðmót, í SharePoint Services 2007, sem birtir lykilupplýsingar s.s. stöðu útstöðva á neti, stöðu notenda, grúppa og yfirlit yfir atburði („event logs”).

Samstarfsaðili: Opin Kerfi ehf. Nemendur: Helga Sigurjónsdóttir, Jón Bjarki Sigurðsson, Kristján Jónsson og Sveinn Helgason.


Skilvirk líkindadreifing

Í verkefninu var búið til stjórntæki í Adobe Flex fyrir þá sem stýra leikjum. Markmiðið var að búa til öflugt og sveigjanlegt tól sem gæti bætt yfirsýn þeirra sem stjórna getraunaleikjum.

Samstarfsaðilar: Betware og Íslenskar Getraunir. Nemendur: Guðmundur Örn Arnarson, Magnús Halldór Pálsson og Sigurjón Viðar Svavarsson.


Scheduler for automatic tests

Kerfið heldur utanum keyrslu og niðurstöður sjálfvirkra prófana bankans. Í kerfinu er hægt að keyra lista af prófunum ásamt því að stilla prófanir fram í tímann.

Samstarfsaðili: Landsbanki Íslands. Nemendur: Sigurður Júníusson og Sunnefa Pálsdóttir.


SOA Þjónustukerfi

Kerfi til að auðvelda og einfalda eftirlit og rekstur á SOA þjónustum innan bankans. Kerfið er öflugt tól til að sjá upplýsingar um allar þjónustur og þjóna sem tilheyra SOA rekstri bankans.

Samstarfsaðili: Landsbanki Íslands. Nemendur: Bjarni Þór Kjartansson, Guðni Þór Björgvinsson og Haukur Harðarson.


Mobile banking

Verkefnið snýst um að gera helstu aðgerðir Einkabanka Landsbanka Íslands aðgengilega á farsímavænu formi. Verkefnið er að sjálfsögðu unnið í samstarfi við Landsbanka Íslands hf. með háar kröfur um nytsemi og öryggi.

Samstarfsaðili: Landsbanki Íslands. Nemendur: Arnar Vilhjálmsson, Gyða Bjarkadóttir, Jónas Kristjánsson og Kristján B. Kristinsson


Rafrænar undirskriftir

Í kjölfar útgáfu örgjörvakorta sem innihalda auðkenni kemur möguleiki á að undirrita skjöl rafrænt. Í verkefninu var smíðuð Client/Server lausn fyrir starfsfólk Kaupþings og viðskiptavini sem gerir ólík undirskriftaferli möguleg, örugg og þægileg.

Samstarfsaðili: Kaupþing. Nemendur: Elvar Atli Hallsson, Bjarki Heiðar Ingason og Kristinn I Pálsson.


Veiðileyfasala gegnum vefinn

Verkefnið felur í sér að smíða gagnvirka vefsíðu þar sem hægt er að kaupa veiðileyfi á ákveðin svæði og greiða fyrir í gegnum netið. Hægt að sjá með grafískum hætti hvar eru laus veiðileyfi á hverjum tíma.

Samstarfsaðili: Austurnet.is. Nemandi: Sigrún Víglundsdóttir.


SkráInn

Verkefnið fólst í að þróa tímaskráningarkerfi fyrir tæknimenn og sérfræðinga EJS. Kerfinu er ætlað að sjá um tímaskráningu tæknimanna og tryggja bæði yfirmönnum og viðskiptavinum góða yfirsýn yfir framgang og stöðu verkefna.

Samstarfsaðili: EJS. Nemendur: Björn Þór Guðmundsson, Gunnar Kristinn Vilbergsson, Vilborg Hlöðversdóttir og Þröstur Berg Þorsteinsson.


IceAuction og Íslenska listaverkavísitalan

Uppboðs- og verðmatskerfi fyrir listmunasöluna Gallerí Fold auk vefsíðu sem birtir ýmsar niðurstöður úr gögnum af uppboðum sem haldin hafa verið á Íslandi frá árinu 1985.

Samstarfsaðili: Gallerí Fold. Nemendur: Georg Þór Ágústsson, Guðni Hjörvar Jónsson og Sigurður G. Kristjánsson.


Greinir

Í verkefninu var unnið tölfræðigreiningarkerfi sem vinnur og birtir “performance” tölfræði úr Huawei GSM símakerfi símafyrirtækisins Vodafone ísland. Kerfið er ætlað til notkunar við skölun og bestun GSM kerfisins, en einnig sem hjálp við bilanaleit.

Samstarfsaðili: Vodafone. Nemendur: Gunnlaugur Ásgeirsson, Jón Brynjar Másson og Þór Sigurðsson.


SIPAM - Siminn Internet

Protocol Address Manager Verkefnið fólst í að gera frumgerð að IP-umsýslukerfi sem ber nafnið SIPAM, sem heldur utan um þau net sem eru í notkun hjá Símanum, úthlutar þeim til viðskiptavina og uppfærir ripe grunninn ef þörf þykir.

Samstarfsaðili: Síminn. Nemendur: Halldór Rúnar Hafliðason og Þórður Matthíasson.


iM Tónlistarveitan

Gerir tónlistarmönnum kleift að selja tónlist sína á stafrænu formi beint til aðdáenda án útgefanda. Kerfið er auðveldlega hægt að laga að kröfum tónlistarmanns til dæmis hvað varðar útlit, sniðmát og verðlagningu.

Samstarfsaðili: iM. Nemendur: Davíð Örn Ingvarsson, Hrafnkell Freyr Magnússon og Stefán Fróðason.


Mobile enabled podcast environment

Amicast er nýtt hugtak sem sameinar myndir og hljóð úr farsíma. Útfærslan á Amicasti í formi félagsnets með tengingum yfir í önnur félagsnet (s.s. Facebook) ásamt sjálfvirkum tilkynningarferlum og mörgu öðru opnar nýjar leiðir fyrir farsímanotendur til þess að blogga með aðstoð farsíma.

Samstarfsaðili: AmiVox Nemendur: Davíð Örn Jóhannsson, Njörður Stefánsson, Páll Ingi Valmundsson, Róbert Marvin Gíslason


Mobile platform service creation

Amivox er samskiptaforrit fyrir farsíma. Með forritinu er hægt að senda tal- og textaskilaboð með auðveldum hætti á milli síma. Forritið var þegar til fyrir Nokia og Sony Ericsson síma, en verkefni okkar var að búa til forritið fyrir Windows Mobile farsíma.

Samstarfsaðili: AmiVox Nemendur: Árni Brynjúlfsson, Ingimundur Helgason, Kjartan Valdimarsson og Þröstur Blöndal


Disaster Relief Community (DRC) - A web portal for knowledge sharing

DRC - veftólið er útfærsla á vef fyrir þekkingarsamfélög. Kerfið er þróað sérstaklega samkvæmt þörfum björgunar- og viðbragðsaðila sem koma að alþjóðlegu hjálparstarfi vegna hamfara, en er þó nógu sveigjanlegt til að sinna einnig þörfum annarra samfélaga. Í kerfinu geta notendur deilt þekkingu sinni, skipst á skoðunum og leitað eftir öðrum notendum með þá þekkingu sem þörf er á vegna tiltekinna atburða.

Samstarfsaðili: Microsoft á Íslandi Nemendur: Ívar Gunnarsson og Örn Ingvar Ásbjörnsson 

Lokaverkefni með Rannsóknaáherslu

Audentifier

Á undanförnum árum hefur mikil aukning orðið á ólöglegri dreifingu á hljóðskrám, þar sem fjárhagslegt tjón getur verið umtalsvert. Verkefnið snýst um að búa til fingraför fyrir hljóðbúta til auðkenninga, sem eru samansett af vigrum í 128 víddum. Fingraförin þola talsverðar breytingar á innihaldi hljóðbúts án þess að þau „skekkist” mikið.

Leiðbeinandi: Björn Þór Jónsson Nemendur: Andri Mar Björgvinsson, Ingólfur Dan Þórisson og Stefán Már Kjartansson.


Practical Contrast Analysis

For High-dimensional Data Sets Nágrannaleit í margvíðum gögnum er mikilvæg á mörgum sviðum, en nýlegar niðurstöður sýna að gögnin þurfa að hafa ákveðna eiginleika (e. contrast) til að slík leit sé marktæk. Verkefnið snýst um aðferðafræði byggða á þessum eiginleika, til að meta nytsemi gagna og leitaraðferða. Þeirri aðferðafræði er svo beitt á nýlega rannsókn á nýrri leitaraðferð, þar sem slík nytsemisgreining hefði betur farið fram.

Leiðbeinandi: Björn Þór Jónsson Nemandi: Ingvar Ólafsson


BML Realizer

BML Realizer er opið safn verkfæra til að myndgera og kvika sýndarmenni í þrívíðum sýndarheimum. Kvikunarvélin tekur við hreyfilýsingu á BML formi („Behavior Markup Language“), sem er nýtt staðlað mál til að lýsa nákvæmri samhæfingu líkamshreyfinga í sýndarmennum. Verið er að þróa þennan staðal hjá Gervigreinarsetri HR í samvinnu við rannsóknasetur um heim allan.

Leiðbeinandi: Hannes Högni Vilhjálmsson Nemendur: Bjarni Þór Árnason og Ægir Þorsteinsson.


A Procedural Approach to Tactile Social

Interaction: A Handshake Þetta er rannsókn á því hvernig hægt er að herma eftir mannlegum samskiptum milli tölvuteiknaðra persóna sem byggjast á snertingu, nánar tiltekið er hermt eftir handabandi tveggja persóna í þrívíddarheimi. Aðferðin nýtir persónukvikvélina SmartBody ásamt nýjum BML skipanastaðli, en þessi tól hafa ekki áður verið notuð til að framkalla snertingu.

Leiðbeinandi: Hannes Högni Vilhjálmsson Nemandi: Óskar Vatnsdal Guðjónsson.


Frumgerð af íslenskri málfræðivilluleit

Leiðir til að finna málfræðivillur í texta voru skoðaðar og frumgerð af íslenskri málfræðivilluleit þróuð. Notendaviðmót tekur inn texta frá notanda, leitar að tilteknum villum og birtir staðsetningu þeirra í textanum. Auk þess birtir kerfið leiðbeinandi skilaboð sem gefa til kynna hvaða villa var gerð. Mobile enabled podcast environment

Leiðbeinandi: Hrafn Loftsson Nemandi: Kristjana Guðjónsdóttir


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica