Lokaverkefni 2011

LOKAVERKEKFNI Í TÖLVUNARFRÆÐIDEILD VIÐ HR - maí 2011

Lokaverkefni með vísindamönnum HR

Wilf-flokkun möskvamynstra

Leiðbeinandi: Henning Úlfarsson
Nemendur: Ingibjörg Jónsdóttir, Ísak Hilmarsson, Sigríður Lína Viðarsdóttir og Steinunn Gróa Sigurðardóttir
Lýsing: Verkefnið fjallar um mynstraforðun í umröðunum og er upphafið á Wilf-flokkun möskvamystra af lengd 2. Flokkunin byggir bæði á þekktum ferlum og leiðum við sannanir, en einnig eru kynntar til sögunnar nýjar aðferðir. Af 1024 möskvamynstrum af lengd 2 inniheldur verkefnið sannanir á Wilf-flokkum 776 mynstra. Einnig má finna athuganir á eina bilamynstrinu af lengd 3 sem er ekki augljóst.

Endurmat leitaraðferðarinnar Multi-Cut pruning í tölvuskák

Leiðbeinandi: Yngvi Björnsson
Nemandi: Hrafn Eiríksson
Lýsing: Skákvélar og önnur forrit sem styðjast við leit í leitartrjám notast við margar mismunandi aðferðir til að taka betri ákvarðanir á stuttum tíma. Ein þessara aðferða kallast Multi-Cut pruning og þrátt fyrir að hún hafi verið notuð í tveimur helstu skákvélum síðustu ára, er eins og hún sé á undanhaldi í tölvuskákheiminum. Í þessu verkefni er Multi-Cut pruning endurmetin sem leitaraðferð og aðlöguð að breyttum tímum.

Þróun gervigreindar fyrir rauntímaherkænskuleikinn StarCraft

Leiðbeinandi: Yngvi Björnsson
Nemendur: Aleksandar Micic, Davíð Arnarsson og Vignir Jónsson
Lýsing: Markmið þessa verkefnis er að kanna leiðir til þess að þróa gervigreindan agent fyrir rauntímaherkænskuleikinn StarCraft, sérstaklega með notkun reinforcement learning.  Áhersla er lögð á bardagaþátt leiksins, nánar tiltekið stjórnun hermanna.

Simulation of the Evolution of the Heart using a Multi-level Cellular Automata Model

Supervisor: Kristinn R. Þórisson
Student: Guðrún Fema Ólafsdóttir
Language: English
Description: Í þessu verkefni er markmiðið að þróa nýja aðferðafræði til að skoða þroskaferli mannshjartans sem byggir á hermun í tölvulíkönum. Vaninn í slíkum rannsóknum er að nota hlutaafleiðujöfnur, en þær krefjast þess að allir eðlisfræðilegir þættir séu þekktir í kerfinu sem verið er að skoða - upplýsingar sem ekki eru til staðar fyrir þroskaferil mannshjartans. Hér er notast við fylkjaaðferðir, sem er tækni sem hefur reynst vel á nokkrum öðrum sviðum líffræði og verkfræði.

Bætt stjórnun notenda á NeuroSky heila-tölvu viðmótinu

Leiðbeinandi: Yngvi Björnsson
Nemandi: Kristín Guðmundsdóttir
Lýsing: Svokölluð heila-tölvu viðmót (e. brain computer interface) eru tiltölulega nýleg.  Vegna lítillar reynslu vill stjórn notenda á slíkum viðmótum vera ábótavant. Í verkefninu  er spurningin: "Hvernig er hægt að auka stjórn notenda á NeuroSky viðmótinu?" skoðuð.

Notendamiðaðar aðferðir í hugbúnaðarþróun - notaðar af úskrifuðum nemendum frá HR

Leiðbeinandi: Marta Kristín Lárusdóttir
Nemandi: Helena Sif Magnúsdóttir
Lýsing: Í verkefninu var skoðað hvaða notendamiðuðu aðferðir eru notaðar í íslenskum hugbúnaðarfyrirtækjum og hvernig þær hafa reynst með spurningalistakönnun. Þátttakendur voru með B.Sc. í Tölvunarfræði, Hugbúnaðarverkfræði eða diplomu í Kerfisfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Tölvunotkun 5 ára barna á leikskólum í Garðabæ

Leiðbeinandi: Marta Kristín Lárusdóttir
Nemandi: Dagný Björk Stefánsdóttir
Lýsing: Leitast er við að svara því hversu mikil tölvunotkun barna á leikskólum í Garðabæ er og hvernig tölvunotkuninni er háttað. Einnig er skoðað hvað einkennir góðan hugbúnað fyrir 5 ára börn.

Lokaverkefni í samstarfi við fyrirtæki

Pósturinn Páll

Samstarfsaðili: Outcome hugbúnaður ehf.
Nemendur: Björn Gunnarsson og Sverrir Kristinsson
Lýsing: Pósturinn Páll er þjónusta sem sér um að senda fjöldatölvupóst. Hann hefur umsjónarvef þar sem hægt er að fylgjast með sendingum sem í gangi eru, sjá villuskráningar og fá skýrslur yfir sendingar. Þjónustan býður upp á forritunarskil sem auðvelt er að skrifa á móti.

Viti bílar, Viti ferilvöktun, Viti þjónn

Samstarfsaðili: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.
Nemendur: Karl Helgason, Ólafur K. Ragnarsson og Ómar Traustason
Lýsing: Í verkefninu voru gerð þrjú kerfi, Viti bílar, Viti ferilvöktun og Viti þjónn, sem notuð eru til að finna út hvaða sjúkrabílar eða slökkvibílar eru styst frá útkallsstað í tíma og birta á ferilvöktunarkorti.

Hverfið

Samstarfsaðili: Íslandspóstur hf.
Nemendur: Hlynur Bjarki karlsson, Ingvi Ágústsson, Kjartan Reynir Hauksson og Ragnar Miguel Herreros
Lýsing: Hverfið er séreining í kerfinu Mappan sem er rafræn póstlúga.  Í Hverfinu er gagnvirkt kort af hverfi notandans sem sýnir þjónustur og tilkynningar frá bæjarfélaginu auk annarra möguleika s.s. að skoða önnur hverfi og bæjarfélög.

Lokaverkefni í samstarfi við fyrirtæki

Meðhöndlun viðvarana frá símstöðvum

Samstarfsaðili: Síminn
Nemendur: Davíð Halldór Lúðvíksson og Gunnlaugur Sigurðsson
Lýsing: Í verkefninu var gert kerfi sem sér um móttöku og flokkun viðvarana frá símstöðvum sem birtast í vefviðmóti.

Rýnir - Tölfræðigreinir fyrir Datamarket

Samstarfsaðili: Datamerket
Nemendur: Arnór Barkarson, Gunnar Sveinsson, Ragnar Lárus Sigurðsson og Þórður Bjarki Arnarson
Lýsing: Í verkefninu var unnið kerfi sem metur tímalínur í gagnasöfnum Datamarket og lætur vita af áhugaverðum breytingum.

Netbankavirkni í snjallsíma

Samstarfsaðili: Teris
Nemendur: Atli Örn Guðmundsson, Halldór Jónasson, Sidi Zaki Ramkdhan og Þröstur Snær Eiðsson
Lýsing:  Verkefnið snýst um gerð netbanka fyrir snjallsíma. Netbandinn er búinn öruggri og einfaldri auðkenningu án auðkennislykils ásamt gagnvirkum samskiptum milli banka og notanda.

Marorka Mobile Portal

Samstarfsaðili: Marorka
Nemendur: Arnar Ólafsson, Bjarni Davíð Guðmundsson, Einar Þorgerisson og Gylfi Þór Bergsveinsson
Lýsing: Markmið verkefnisins er að þróa farsímalausn fyrir orkustjórnunarkerfi Marorku fyrir skipaflota, Marorka Portal. Með Marorku Mobile Portal geta rekstraraðilar í landi greint frammistöðu skipa sinna og fengið rauntímamælingar á orkunýtingu hvar sem þeir eru staddir með hnitmiðaðri og skýrri uppsetningu.

 HTML5 veðleikur hannaður fyrir Apple handtæki

Samstarfsaðili: Betware
Nemendur: Ásgeir Einarsson, Bergur Páll Gylfason, Daði Magnússon og Vignir Jónsson
Lýsing: Veðleikur (Instant Game) var skrifaður á móti Betware Instant Game Framework. Leikurinn virkar á öllum helstu vöfrum, skalast vel á milli tækja og nýtir sér kosti Facebook. Allur endurnýtanlegur kóði var settur í sérstakan ramma (framework) sem hægt er að nota til þess að búa til nýja leiki á auðveldari máta.

 Þróun á hugstjórnaða fjölspilunarleiknum "Gods and Mortals" með hjálp leikmanna

Samstarfsaðili: MindGames ehf.
Nemendur: Aðalsteinn Sævarsson, Bjarki Einarsson, Vífill Valdimarsson og Þórður Roth
Lýsing: Í verkefninu var unnið að þróun með hjálp leikmanna á Gods and Mortals, heimsins fyrsta hugarstjórnaða fjölspilunarleiknum á Facebook. Í leiknum keppa leikmenn um að komast frá jörðinni til himna, en guðinn reynir að hægja þá þeim með ýmsum göldrum.

 Nýtt viðmótslag ofan á vírusvarnarvél

Samstarfsaðili: Friðrik Skúlason ehf.
Nemendur: Andrés Ævar Grétarsson, Gunnar Tómas Gunnarsson, Haukur Jónasson og Þórður Gunnarsson
Lýsing: Í verkefninu var þróað nýtt notendaviðmót á meginvöru fyrirtækisins, veiruvarnarforritið F-PROT, með sérstakri áherslu á einföldun á gerð fjöltyngdra (multi-lingual) útgáfa og aðgreiningu viðmóts frá virkni.

 Miðstýring öryggishugbúnaðar í fyrirtækjum

Samstarfsaðili: Friðrik Skúlason ehf.
Nemendur: Anton Stefánsson, Kristján Pálmi Gunnarsson og Magni Reynir Sigurðsson
Lýsing: Verkefnið felur í sér að smíða hugbúnað sem hjálpar kerfisstjóra að hafa yfirsýn yfir tölvur á neti innan fyrirtækis. Hugbúnaðurinn birtir ýmsar upplýsingar hvað varðar stöðu vírusvarnarhugbúnaðar á tölvum innan sama nets.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica