Lokaverkefni 2010

Lokaverkefni í samstarfi við fyrirtæki

Vefviðmót afritunarþjónustu fyrir SecurStore

Samstarfsaðili:  SecurStore
Nemendur:
 Alfreð Már Alfreðsson, Reynir Baldursson, Ævar Eggertsson
Lýsing: Verkefni
ð felst í gerð vefviðmóts fyrir SecurStore, sem sérhæfir sig í afritunarþjónustu. Vefviðmótið er notað af endursöluaðilum og stærri viðskiptavinum til að fá yfirlit yfir afritunarstöðu sína og hafa umsjón með viðskiptavinum.

Gagnvirkur vefur Atvinnuþjónustu HR

Samstarfsaðili: Atvinnuþjónusta HR og Stúdía
Nemendur: Brynjar Ýmir Birgisson, Helgi Þórðarson
Lýsing:
Nýr vefur Atvinnuþjónustu HR verður auglýsinga - og ráðningarvefur þar sem nemendur HR geta sótt um störf sem vinnuveitendur hafa skráð sjálfir inn á vefinn.

Félagaþjónusta – Innheimtukerfi

Samstarfsaðili: Arion banki
Nemendur: Auður Ösp Jónsdóttir, Eyrún Ýr Guðmundsdóttir, Róbert Badí Baldursson
Lýsing: Félagaþjónusta Arion banka er innheimtukerfi fyrir leigusala og húsfélög. Kerfið gerir starfsmönnum bankans kleift að setja upp alla  innheimtu eins og óskað er. Kerfið stofnar kröfur og skrifar út greiðsluseðla í lok hvers mánaðar og sendir á greiðendur.

Scrum stjórnborð

Samstarfsaðili: Íslandsbanki
Nemendur: Sigríður Hafdís Sigurðardóttir, Sólrún Ragnarsdóttir, Stefán Eydal, Stefán Þór Haraldsson
Lýsing:
Scrum stjórnborði er ætlað að styðja við hlutverk Scrum Mastera innan hugbúnaðardeildar Íslandsbanka. Kerfið einfaldar skráningar á framvindu teyma niður í Team Foundation Server. Einnig er hægt að skoða á myndrænan hátt framvindu spretta hjá teymum innan bankans.

Making mind-controlled games social

Samstarfsaðili: MindGames
Nemendur:  Jón Trausti Arason, Richard Ottó O´Brien, Viktor Einarsson
Lýsing:
Leikur, sem nýtir samfélagsvefinn Facebook, þar sem notendur spila með vinum sínum í rauntíma. Til að komast áfram þurfa leikmenn að vinna og leysa þrautir í sameiningu. Við spilun leiks er notað tól sem les heilabylgjur leikmanns. Notendur hafa valmöguleika á því að búa til sín eigin borð sem eru spilanleg öllum notendum.

Umsýslukerfi fyrir tölvuleikinn: Vikings of Thule

Samstarfsaðili: Gogogic
Nemendur:
Arnór Ólafsson, Snorri Jónsson, Waleska Tinoco
Lýsing:
Umsýslukerfið er hjálpartæki fyrir stjórnendur til að greina leikinn Vikings of Thule, kerfið á t.d. að aðstoða stjórnendur að finna þá spilara sem eru að svindla og með því geta þeir gert viðeigandi ráðstafanir.  Með umsýslukerfinu er einnig möguleiki á að skoða stöðu hagkerfisins í leiknum sem og veltu og hversu hratt leikurinn er að vaxa.

Rafvæðing samgangna

Samstarfsaðili: Verkfræðideild HR
Nemendur: Guðmundur Helgason, Gunnþór Árnason, Ingólfur Kristinn Guðnason
Lýsing: Verkefnið fólst í því að greina, hanna og þróa vefbókunarkerfi fyrir starfsfólk og nemendur HR til að auka aðgengi að vistvænum farartækjum.

Verknet - Dreift og sveigjanlegt verkskráningarkerfi

Samstarfsaðili: Austurnet
Nemendur: Erlingur Þórarinsson, Garðar Valur Hallfreðsson

Lýsing: Verknet er verkskráningarkerfi.  Kerfið heldur utan um allar verkskráningar verktaka í miðlægum gagnagrunni sem aðgengilegur er frá vefsíðu. Verkskráningar fram á útstöðvum sem eru í vinnuvélum verktakans. Starfsmenn verktakans geta þ.a.l. skráð vinnu sína í vinnuvélum sínum og sent verkskráningar úr þeim á miðlæga gagnagrunninn eftir aðstæðum.

Lokaverkefni með vísindamönnum HR

Fatafrík

Leiðbeinandi:  Hannes Högni Vilhjálmsson
Nemandi: Hildur Sif Thorarensen
Lýsing:
Viltu vita hvaða föt í fataskápnum þínum fara þér vel og passa á þig án þess að þurfa sjálfur að máta hverja spjör? Fatafrík er kerfi sem gerir notandanum kleift að búa sér til persónugerving (e. avatar), taka mynd af fötum úr fataskápnum sínum og máta fötin á persónugervinginn með sjálfvirkri þrengdarmælingu.

AI for the Game Vikings of Thule

Leiðbeinandi:  Yngvi Björnsson
Nemandi:
Kristján Guðni Halldórsson
Lýsing: Verkefnið snýst um að smíða frumgerð að gervigreindar agent fyrir bardagakerfið í tölvuleiknum Vikings of Thule.  Agentinn lærir að spila  vel á móti mismunandi andstæðingum, ásamt því að vera stillanlegur  með tilliti til þess að aðlaga sig að getu mótspilarans.

Experimental Evaluation of Algorithms for Wireless Scheduling

Leiðbeinandi:  Magnús Már Halldórsson
Nemandi:
Snæbjörn Halldór Snæbjörnsson
Lýsing:
Mælingar/athuganir á reikniritum sem að sjá um að skippuleggja þráðlausar samskiptabeiðnir.

Notkun frjáls og opins hugbúnaðar hjá íslenskum hugbúnaðarfyrirtækjum

Leiðbeinendur:  Marta Kristín Lárusdóttir og Tryggvi Björgvinsson
Nemandi: Hildur Björns Vernudóttir
Lýsing: Rannsókn á notkun frjáls og opins hugbúnaðar hjá íslenskum hugbúnaðarfyrirtækjum. Leitað er svara við rannsóknarspurningum sem fjalla um ástæður fyrir því að valinn er frjáls og opinn hugbúnaður við hugbúnaðargerð. Enn fremur er kannaður hvort munur sé á notkun frjáls og opins hugbúnaðar hjá þeim fyrirtækjum sem framleiða hilluvarning annars vegar og sérsniðinn hugbúnað hins vegar.

Innleiðing  á Agile aðferðafræði hjá Vöruhúsateymi Íslandsbanka

Leiðbeinandi:  Marta Kristín Lárusdóttir
Nemandi: Oddur Kristjánsson
Lýsing:
Verkefnið felst í því að reyna að mæla umbætur er verða við upptöku Agile aðferðafræði í tölvudeild. Það sem gert er í þessari rannsókn er að mæld er ánægja starfsmanna fyrir og eftir innleiðingu nýrrar aðferðafræði. Síðan er lagt mat á virðisaukann sem ný aðferðafræði skilar fyrirtækinu.

Mörkun og þáttun stórrar málheildar

Leiðbeinandi:  Hrafn Loftsson
Nemandi: Svavar Kjarrval Lúthersson
Lýsing: Í þessu verkefni var málheildin Íslenskur Orðasjóður, sem samanstendur
af u.þ.b. 250 milljón orðmyndum, mörkuð og þáttuð á vélrænan hátt. Þess konar greining hefur ekki verið framkvæmd áður á jafn stóru safni íslenskra setninga.

Lokaverkefni í samstarfi við fyrirtæki

AI-Scraper

Stofa: Fönix 3 – M1.09
Samstarfsaðili: CLARA
Nemendur:
Jökull Huxley, Sigmar Ingi Kristmundsson, Stefán Einarsson
Lýsing: Í verkefninu er hugbúnaði kennt að lesa vefsíður og þekkja hvaða efni er verið að skoða. Til þess er notast við Flokkara (e.Classifier) sem er þjálfaður upp í að sjá einkennandi hluti hvers og eins flokks t.d. er einkennandi fyrir titil bloggfærslu að hann er ein til tvær línur af texta á meðan meginmál bloggfærslunar er tvær línur eða fleiri.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica