„Þegar ég hóf nám við tölvunarfræðideild HR voru væntingarnar miklar. Þar hafði ég heyrt af góðum og metnaðarfullum kennurum sem lögðu alúð sína í að gera mig að góðum tölvunarfræðingi. Eins hafði ég örlítið heyrt af því magnaða rannsóknarstarfi sem er stundað við deildina, og jafnast reyndar á við það sem best gerist á heimsvísu. Í dag eru tæplega þrjú ár liðin síðan að þetta var, og þó það hljómi klisjukennt þá hefur námið staðist allar mínar væntingar. Og reyndar töluvert meira en það. Það virðist nefnilega vera svo, að fólkið sem stendur að baki deildinni virðist hafa óþrjótandi áhuga á því að auka sífellt gæði kennslu, þjónustu og rannsókna við hana. Af þessari ástæðu, er ég þess fullviss að tölvunarfræðideildin við HR hefur aldrei verið jafn sterk og hún er í dag og mun hún sennilega ekki koma til með að gera neitt annað en að styrkjast enn frekar.“

