RANNSÓKNARSETUR TÖLVUNARFRÆÐIDEILDAR

Gagnasetur

Gagnaseturs Háskólans í Reykjavík er rannsóknarstofa á sviði gagnasafnsfræði sem starfrækt hefur verið frá árinu 2002. Markmið setursins er að stunda rannsóknir í fremstu röð á sviði gagnasafnsfræði, að víkka sjóndeildarhring nemenda á öllum námsstigum, með því að bjóða þeim þátttöku í framsæknum rannsóknarverkefnum, og að stuðla að notkun gagnasafnstækni í iðnaði og þjóðfélagi. Nánar»

Gervigreindarsetur

Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík, sem stofnað var árið 2005, stundar rannsóknir á ýmsum sviðum gervigreindar, með fjögur kjarnasvið: Gervigreind í sýndarheimum og tölvuleikjum, leit og áætlanagerð, víxlverkun og samskipti í rauntíma og náttúruleg samskipti manns og vélar (tal, sjón, heyrn, skilningur). Nánar»

Tungutæknisetur

Tungutæknisetur, sem stofnað var árið 2005, er samstarfsvettvangur tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík, Málvísindastofnunar Háskóla Íslands og orðfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um rannsóknir, þróun og kennslu í tungutækni (máltækni). Nánar um Tungutæknisetrið.  Nánar um máltækni í HR.

Þekkingarsetur í fræðilegri tölvunarfræði

Þekkingarsetur í fræðilegri tölvunarfræði, sem stofnað var árið 2005, er samvinnuverkefni tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík og tölvunarfræðisviðs Verkfræðistofunar Háskóla Íslands. Markmið setursins er að byggja upp grunnrannsóknir á Íslandi á sviðum stærðfræðilegra kjarnasviða í tölvunarfræði.  Þar má telja hönnun og greiningu reiknirita, lífupplýsingafræði, strjála stærðfræði, reiknifræði og lærdómsfræði. Nánar»

Þekkingarsetur í hugbúnaðarfræði

Þekkingasetur í hugbúnaðarfræði (ICE-ROSE) leggur áherslu á rannsóknir á formlegum, hluteiningamiðuðum aðferðum og notendamiðuðum aðferðum við hönnun og útfærslu hugbúnaðar. Einnig er lögð áhersla á rannsóknir á hlutbundnum aðferðum og sannprófun byggð á þáttun hluteiningar. Nánar»

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica