Háskólanám með vinnu (HMV) er góður valkostur fyrir einstaklinga sem vilja stunda fullgilt nám í háskóla samhliða vinnu. Sífellt meiri kröfur eru gerðar til menntunar og fleiri og fleiri kjósa að afla sér háskólamenntunar á sviði upplýsingatækni. Háskólamenntun í tölvunarfræði er fjárfesting sem getur skilað þér betra starfi, hærri launum og meiri starfsánægju.
Hægt er að ljúka 120 ECTS diplomagráðu í kerfisfræði HMV á mismunandi hraða. Leið 1 er að stunda fullt nám og ljúka því á 2 árum. Leið 2 að stunda námið á rúmlega hálfum hraða og ljúka því á þremur árum. Námið í HMV er algjörlega sambærilegt við námið í dagskóla. Sömu kröfur eru gerðar til nemenda í HMV og nemenda í dagskóla og þreyta nemendur sömu próf.
Námið nýtist að fullu kjósi nemandi að skipta yfir í dagskóla. Nemendur geta ákveðið síðar að halda áfram og ljúka BSc prófi í tölvunarfræði en þurfa þá að bæta við sig einu námsári (60 ECTS).
Fyrirkomulag kennslu
Nemendur í HMV mæta í dæmatíma í skólann einu sinni í viku eftir kl. 16:20 í hvert námskeið. Námsárið er skipt í þrjár annir: vor-, sumar- og haustönn. Haust- og vorönn eru 15 vikur en vorönnin skiptist í 12+3 vikur. Sumarönn er sex vikur.
Lokapróf í námskeiðum fara almennt fram á dagskólatíma og þurfa nemendur í HMV að hafa aðstöðu til að mæta í þau próf. Einnig getur komið upp sú staða að nemendur í HMV séu boðaðir í önnur próf eða mikilvæga fundi á dagskólatíma, en reynt er að halda því í lágmarki.
Námskeið í staðarnámi
Allir skylduáfangar í Kerfisfræði-HMV eru kenndir eftir venjulegan vinnutíma fyrir utan námskeiðið Verklegt námskeið en Verklegt námskeið er kennt á 4. önn.
Þar sem námskeiðið er full vinna í þrjár vikur er nauðsynlegt að nemendur geti tekið þessar þrjár vikur frá þegar svo ber við. Vinna við lokaverkefni stendur yfir í fjóra mánuði í lok námsins.
Rafrænt námsumhverfi
Námið fer fram með aðstoð rafræns námsumhverfi á innri vef skólans, MySchool, en þar er efni dreift, nemendur skila af sér verkefnum og eiga í samskiptum við kennara og samnemendur. Hluti af kennsluefninu eru hljóðfyrirlestrar sem eru ýmist fyrirlestrar teknir upp í kennslustundum í staðarnámi eða teknir sérstaklega upp og geta nemendur sótt þá og hlustað á þegar þeim hentar. Uppbygging námskeiðanna er mismunandi en í öllum er þó nokkur verkefnavinna og getur verið um að ræða einstaklings- eða hópverkefni.

