Meistaranám í hugbúnaðarverkfræði

Tölvunarfræðideild, í samvinnu við tækni- og verkfræðideild, er með tveggja ára (120 ECTS eininga) framhaldsnám til meistaragráðu (MSc) í hugbúnaðarverkfræði.  Námið fer fram á ensku og er lögð áhersla á að dýpka og breikka þekkingu, samhliða aukinni þjálfun í beitingu þeirra aðferða sem notaðar eru í verkefnavinnu og rannsóknum. 

Tölvunarfræðingar eiga kost á mjög fjölbreytilegum störfum, enda skarast tölvunarfræði við margar greinar, s.s. stærðfræði, sálfræði, verkfræði, lífupplýsingafræði, viðskiptafræði o.fl.

Tölvunarfræðideild er í virku alþjóðlegu samstarfi, bæði í kennslu og rannsóknum. Jafnframt vinnur deildin náið með atvinnulífinu, t.d. í formi lokaverkefna. Nemendum gefst tækifæri á að fara í starfsnám til Fraunhofer í Maryland í Bandaríkjunum.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica