Inntökuskilyrði
ATHUGIÐ - Ekki verða teknir inn nýnemar í meistaranám í máltækni haustið 2011.
Nám í máltækni er bæði fyrir nemendur með BA-próf í hugvísindagreinum (almennum málvísindum, íslensku og erlendum tungumálum) og BSc-próf í raungreinum (tölvunarfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði o.fl.). Þeir sem hafa lokið háskólaprófi í öðrum skyldum greinum geta einnig sótt um inngöngu og er þá undirstaða þeirra metin sérstaklega.
Umsóknum skal skilað rafrænt. Hverri umsókn skulu þó einnig fylgja eftirfarandi fylgigögn og er nauðsynlegt að senda frumrit af þeim í pósti:
- Staðfest afrit af prófskírteinum á háskólastigi. Ef því verður við komið, skulu fylgja upplýsingar um frammistöðu umsækjanda í samanburði við aðra nemendur á viðkomandi námsbraut.
- Tvö meðmælabréf frá kennurum eða öðrum aðilum sem þekkja til færni umsækjanda í námi.
- Bréf frá umsækjanda sem lýsir fyrirætlunum umsækjanda og því hvaða hlutverki meistaranám við Háskólann í Reykjavík gegnir í þeim.
- Aðrar upplýsingar sem að gagni geta komið við að meta umsækjanda.
Fylgigögn verða að vera póstmerkt fyrir dagsetningu sem verður tilkynnt síðar.
Senda skal fylgigögn til:
Kristín Guðmundsdóttir, skrifstofustjóritölvunarfræðideild
Háskólinn í Reykjavík
Menntavegur 1 við Nauthólsvík
IS-101 Reykjavík

