Tölvunarfræðideild er með tveggja ára (120 ECTS eininga) framhaldsnám til meistaragráðu (MSc) í tölvunarfræði. Námið fer fram á ensku og er hægt að velja milli áherslu á rannsóknir og áherslu á námskeið.
- Í meistaranámi með áherslu á rannsóknir taka nemendur námskeið fyrstu tvær annirnar, og einbeita sér svo að einstaklingsrannsóknarverkefnum seinni tvær annirnar, með leiðsögn rannsóknarstarfsmanns við deildina.
- Í meistaranámi með áherslu á námskeið taka nemendur námskeið fyrstu þrjár annirnar og vinna svo að meistaraverkefni síðustu önnina. Meistaraverkefnið má vera hópverkefni.
Tölvunarfræðingar eiga kost á mjög fjölbreytilegum störfum, enda skarast tölvunarfræði við margar greinar, s.s. stærðfræði, sálfræði, verkfræði, lífupplýsingafræði, viðskiptafræði o.fl.
Tölvunarfræðideild er í virku alþjóðlegu samstarfi, bæði í kennslu og rannsóknum. Jafnframt vinnur deildin náið með atvinnulífinu, t.d. í formi lokaverkefna. Nemendum gefst tækifæri á að fara í starfsnám til Fraunhofer í Maryland í Bandaríkjunum.

