Langar þig að fara til Bandaríkjanna í starfsnám?
Langar þig að fara til Bandaríkjanna í starfsnám?
Tölvunarfræðideild HR er með samstarfssamning við Fraunhofer Center for Experimental Software Engineering við Háskólann í Maryland .
Allt að 4 nemendum á ári gefst kostur á að fara út til Fraunhofer í starfsnám og fengið metið þá vinnu sem einingar. Við Fraunhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu. Nemendur fá borguð laun á meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði i senn. Frekari upplýsingar má nálgast hér.
KYNNINGAFUNDUR FER FRAM MIÐVIKUDAGINN 23. SEPTEMBER í K-5 KLUKKAN 11.45-12.10
ALLIR VELKOMNIR – LÉTTAR VEITINGAR VERÐA Í BOÐI


