Hringekjan, samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Álftamýrarskóla

12.11.2009

alfto3_mid[1]Álftamýrarskóli og Háskólinn í Reykjavík eru þessar vikurnar í samstarfverkefni um kennslu í vísindum og tækni kallað Hringekjan.  

Um 120 krakkar úr 8.-10. bekk Álftamýrarskóla taka þátt í verkefninu, auk 13 kennara. Markmiðið með samstarfinu er að gefa krökkunum nýja sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra og áhuga á tækni- og raungreinum. Lögð verður áhersla á að sýna þeim leiðir til að nýta tæknina til að skapa, leysa verkefni og öðlast frekari skilning á ólíkum viðfangsefninu. Meðal þess sem fjallað verður um er eðlisfræði, mekatroniks, notkun verkfræði í umferðinni, gervigreind, forritun, myndaleit og hvernig tölvur vinna með og greina texta.

Þeir starfsmenn sem tóku þátt fyrir hönd tölvunarfræðideildar og aðstoðuðu nemendur við kennslu voru  Ari Kristinn Jónsson, Björn Þór Jónsson, Hrafn Loftsson og Hallgrímur Arnalds.

 

 

 

 

Hrafn Loftsson, lektor við tölvunarfræðideild HR, að sýna nemendum forrit sem greinir íslenskan texta og leita eftir hugmyndum þeirra um hvernig mætti nota það í íslenskukennslu og til að búa til tölvuleiki. 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica