Kynningardagur lokaverkefna - Mánudaginn 23. nóvember
Mánudaginn 23. nóvember er haldinn kynningardagur lokaverkefna kl. 12:10 – 14:30 í stofu K5 í Kringlan .
Fyrirtæki sem óskuðu eftir að leggja fram verkefni höfðu frest til að skila inn verkefnistillögum til 15. nóvember. Nú hafa fjölmargar tillögur borist og á fundinn munu fulltrúar fyrirtækja kynna sín verkefni.
Við hvetjum alla nemendur í tölvunarfræði sem er búin að skrá sig í Lokaverkefni á vorönn 2010 til að mæta á fundinn. En við hvetjum einnig nemendur sem hafa áhuga á að kynna sér fyrirkomulag Lokaverkefna að mæta.
Frekari upplýsingar um Lokaverkefni við Tölvunarfræðideild má finna hér


