Samstarfssamningur við IGI
Til að styðja við leikjaþróunarlínuna hefur tölvunarfræðideildin farið í samstarf við íslenska leikjaiðnaðinn.
Í samstarfssamningnum felst meðal annars:
- að starfsfólk fyrirtækja í IGI munu kenna valnámskeið sem nýtast nemendum á leikjaþróunarlínunni (eða öðrum námslínum)
- að starfsfólki fyrirtækja í IGI verði gert kleyft að sækja námskeið á leikjaþróunarlínunni
- að HR og IGI leiti eftir samstarfi við rannsóknir og þróun tölvuleikja, meðal annars gegnum lokaverkefni nemenda
Það er von okkar að þetta samstarf muni efla leikjaiðnaðinn enn frekar, og veita nemendum HR margvísleg tækifæri á sviði menntunar og rannsókna í framtíðinni.
Lesa grein í Fréttablaðinu



