Forritunarkeppni framhaldsskólanna 2012
Forritunarkeppni framhaldsskólanna verður haldin í ellefta sinn helgina 9. - 10. mars 2012 í húsakynnum Háskólans í Reykjavík. Undirbúningur fyrir keppnina er hafin og er gert ráð fyrir metþátttöku. Keppnin verður með öðru sniði en áður þar sem núna verður keppt í þrem flokkum, einn byrjendahópur, en svo verður einn hópur í þrautalausnum og annar í tæknilausnum. Vinningshafar þrautalausnanna og tæknilausnanna munu hljóta niðurfellingar skólagjalda við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og fyrstu verðlaun.


