-
Byrjaðu snemma að undirbúa þig, helst ári fyrir brottför.
-
Byrjaðu á því að skoða upplýsingar á heimasíðu alþjóðskrifstofu HR og aðrar upplýsingar aðgengilegar á skrifstofunni sjálfri.
-
Lestu ferðaskýrslur fyrrverandi skiptinema HR. Þessar skýrslur geta gefið dýrmætar og nýlegar upplýsingar um námið, menningu dvalarlandsins og önnur félagsleg atriði sem vert er að hafa í huga hvort heldur sem um er að ræða skólann sjálfan eða landið. Þessar skýrslur eru aðgengilegar á alþjóðaskrifstofu HR.
-
Kannaðu möguleika þína í löndum sem þú þekkir lítið.
-
Taktu þátt í alþjóðadegi HR
-
Kannaðu hvort þú uppfyllir nauðsynleg skilyrði til þess að eiga kost á því að fara utan í skitptinám. Til dæmis er krafist lágmarksenskukunnáttu fyrir Mexíkó.
-
Lestu námsskránna þína og ef þú ert ekki klár á hvaða námskeið þú ættir að velja til þess að fá þau metin sem hluta af þínu námi geturðu pantað viðtal við yfirmann þinnar deildar.
-
Ef þér tekst ekki að finna nægjanlegar upplýsingar um þann eða þá háskóla sem þér finnast mest spennandi geturðu prófað að leita af upplýsingum á netinu.
-
Kannaðu tímanlega hvort þú hafir útvegað öll gögn. Ef þú ert ekki viss, hafðu þá samband við alþjóðaskrifstofu HR.
-
Um leið og þú hefur ákveðið hvert þú vilt fara ættirðu að kanna strax hvaða styrkir eru í boði og sækja um þá. Ekki bíða eftir að umsóknin þín fái samþykki. Skilaðu inn ítarlegri og vandaðri umsókn um styrki.
-
Reyndu að komast í samband við stúdenta HR sem áður hafa farið utan í viðkomandi háskóla og kannaðu hvort einhverjir erlendir skiptistúdentar við HR komi frá þeim háskóla.
-
Gerðu fjárhagsáætlun. Passaðu upp á að vegabréfið þitt sé í gildi að minnsta kosti út áætlaðan dvalartíma erlendis. Pantaðu þér flugfar til að fá það á sem hagstæðustu verði. Kannaðu reglur um dvalarleyfi.
-
Alþjóðaskrifstofa HR mun vera í sambandi við þig í gegnum HR netfangið þitt. Ef þú sérð ekki fram á að nota það netfang skaltu láta áframsenda allan póst á það netfang sem þú ætlar þér að nota.
-
Tæknideild HR, við móttökuna í Sólinni, getur gefið þér leiðbeiningar um það hvernig þú framkvæmir þetta.
-
Ef þú færð ekki pláss í þeim háskóla sem þú valdir, ekki gefa upp alla von! Kannaðu aðra möguleika og pantaðu viðtal við starfsfólk alþjóðaskrifstofu HR til að aðstoða þig við það.
-
Ef þú hefur áhuga á að leigja húsnæði þitt eða herbergi á meðan þú dvelur erlendis í skiptinámi þá vantar á hverri önn, fjölda erlendra skiptistúdenta sem koma til náms í HR, þak yfir höfuðið frá miðjum ágúst til desemberloka, eða frá byrjun janúar til júníloka.
-
Þegar þú snýrð aftur heim mundu þá að fylla út ferðaskýrslu og skila henni inn til alþjóðaskrifstofu HR.