Hvenær er best að fara í skiptinám?

Til þess að eiga möguleika á því að fara utan í skiptinám þarf nemandi að hafa lokið að minnsta kosti einu ári í háskólanámi þegar skiptinámið hefst; 30 íslenskum einingum. Nemendur í grunnámi geta því farið í skiptinám á öðru eða þriðja ári.  Nemendur geta skipulagt sig og skrifað lokaritgerð sína í skiptináminu þó flestir kjósi að taka síðustu önnina í HR.

 Fyrir nemendur í tveggja ára meistaranámi er hentugast að fara á annarri eða þriðju önn og fyrir nemendur í þriggja anna framhaldsnámi er hentugast að fara á annarri önn.

 Þegar spurningunni um hvenær best er að fara í skiptinám er svarað, er nauðsynlegt að kanna hvernig skólaárið í viðkomandi gestaskóla er.  Það er gert með því að fara inn á heimasíðu samstarfsskólanna og leita þar að 'Academic Calendar'. Í mörgum samstarfsskólum HR lýkur haustönninni ekki fyrr en í lok janúar, ef ætlunin er að vera í fullu námi allt skólaárið er vorönnin í þessum skólum miklu hentugri.  Nemendur sem stefna að útskrift að vori og ætla að vera í skiptinámi síðustu önnina sína þurfa aftur að gæta að því hvort önninni í gestaskólanum ljúki fyrir útskrift.




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica