Hvert get ég farið?
Þegar ákveðið hefur verið hvenær hentugast er að fara er komið að því að svara spuringunni hvert er best að fara?
Þegar þú leitar að hentugum gestaskóla, er gott að hafa eftirfarandi í huga:
- Hefur þú nægilega tungumálakunnáttu fyrir þau námskeið sem þú stefnir á að taka í gestaskóla? ATH. flestir gestaskólar bjóða uppá nám á ensku en ekki allir.
- Mikilvægt er að fara vel yfir námsskrár gestaskólanna til að ganga úr skugga um að gestaskóli bjóði uppá nánskeið sem hægt er að fá metin sem hluta af náminu við HR. Það hefur reynst erfiðara að finna samsvarandi skyldunámskeið við gestaskólana heldur en að fá námskeið í skiptinámi metin sem valnámskeið. Því hafa nemendur gjarnan tekið stóran hluta af valnámskeiðum sínum í skiptináminu.
- Býður gestaskóli uppá þá háskólagráðu (BSc, MSc, MBA eða PhD) á því stigi sem hentar þér?
- Hvernig lítur almanak gestaskólans út í samanburði við almanak HR? (hvenær önn hefst -hvenær önn líkur)
HR hefur samning við 100 gestaskóla í 26 löndum. Skólarnir eru flokkaðir eftir heimshlutum, deildum og eftir því hverskonar stúdentaskiptasamningur er við skólann, þ.e. hvort möguleiki er á styrk (Erasmus eða Nordplus).
Samningarnir sem gerðir hafa verið við samstarfsháskólana bjóða yfirleitt upp á pláss fyrir 2 stúdenta á hverri önn. Þó eru undantekningar frá því og er í sumum háskólum einungis um eitt laust pláss að ræða á meðan það er auðsótt að fá fleiri pláss í öðrum háskólum. Í sumum tilvikum utan evrópu fela samningar ekki í sér ákveðinn pláss og gildir því reglan, fyrstur kemur fyrstur fær, yfir þá samninga.
Hvar er best að leita upplýsinga?
Til að verða sér úti um frekari upplýsingar um erlenda samstarfsháskóla HR geta nemendur nýtt sér:
- Kynningarfundi um skiptinám hjá alþjóðasviði HR þar sem farið er yfir umsóknarferlið og Erasmus og Nordplus styrkir kynntir.
-
Alþjóðadaga HR. Þeir eru haldnir einu sinni á hvorri önn, í september og í lok janúar. Þar gefst stúdentum HR kostur á að kynna sér það skiptinám sem í boði er og spjalla við erlenda skiptistúdenta við skólann, aðra stúdenta HR með reynslu af skiptinámi og starfsfólk alþjóðaskrifstofu.
-
Heimasíðu alþjóðasviðs HR, þar má finna tengil inn á heimasíður samstarfsháskóla HR. Athugið að það reynist yfirleitt vel að velja strax ensku á heimasíðu gestaskólans til að nálgast þær upplýsingar sem ætlaðar eru skiptinemum.
-
IRIS gagnagrunninn sem komið var á fót til að safna saman lokaskýrslu allra ERASMUS skiptistúdenta. Þar má meðal annars finna upplýsingar um námskeið, kennsluhætti, húsnæði og allt það sem ber að hafa í huga þegar haldið er í skiptám. Áreiðanlegustu upplýsingarnar er að finna hjá þeim stúdentum sem nýlega hafa verið í skiptinámi.
-
Heimasíðu SÍNE (Samband íslenskra námsmanna erlendis) hefur reynst gagnleg við leit á húsnæði erlendis. Athugið að samstarfsskólar HR skuldinda sig til þess að vera skiptistúdentum innan handar við að útvega húsnæði og oft fá skiptinemar húsnæði í stúdentagörðum.
Aðrir möguleikar
Sérðu ekki draumaháskólann þinn hér? Reyndar er alþjóðasvið ekki ferðaskrifstofa en við reynum allt hvað við getum að koma til móts við óskir nemenda. Ef þú hyggur á skiptinám eftir ár eða meira, er möguleiki á því að við gerum skiptisamning við þann háskóla sem þú hefur mestan áhuga á. Sendu þá póst á international@ru.is til að stinga upp á háskóla. Jafnframt þarftu að segja í hvaða námi þú ert í. Tillaga þín fer svo til deildar til samþykktar og eftir 3 til 12 mánuði gætir þú séð nafnið á háskólanum sem þú lagðir til á þessari síðu.

