Nemendur geta sótt um ERASMUS og Nordplus styrki. Nemendur sem sækja um skiptinám í samstarfsskólum eða í samstarfsneti geta sótt um styrk. Styrknum er einungis ætlað að mæta ferða- og viðbótarkostnaði sem stúdentar verða fyrir við að flytjast á milli skóla, svo og kostnaði sem þeir kunna að greiða vegna tungumálanáms í tengslum við nám sitt erlendis. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að nemendur haldi venjulegu láns- eða styrktarmöguleikum heima fyrir óbreyttum.
ERASMUS styrkur
Styrkurinn fyrir skólaárið 2012-13 er 300 evrur á mánuði auk ferðakostnaðar; 500 evrur til Kaupmannahafnar og London og 650 evrur til annarra landa í Evrópu. Fylla þarf út Erasmus umsókn, prenta hana út og skila undirrituðu eintaki til alþjóðasviðs HR, 3. hæð. ERASMUS styrkur er hluti af Menntaáætlun Evrópsambandsins til að styrkja samvinnu á milli háskóla í Evrópu með áherslu á gæði náms og stuðla að viðurkenningu á háskólanámi milli evrópskra háskóla.
Nordplus
Styrkurinn fyrir skólaárið 2012-2013 er áætlaður 180-200 evrur á mánuði auk 500 evra ferðastyrks. Ekki þarf að sækja sérstaklega um Nordplus styrkinn fyrr en eftir að skiptinámið hefur verið samþykkt. Nordplus styrkur er hluti af Menntaáætlun Nordplus til að styrkja samvinnu á sviði menntamála á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum með áherslu á gæði og nýsköpun.
Styrki þarf að gefa upp til skatts. Þeir nemendur sem fá ERASMUS og Nordplus styrki skuldbinda sig til að vera skólanum innan handar við að kynna HR í gestaskólanum og veita upplýsingar um gestaskólann í HR.
Nánari upplýsingar um mögulega styrki má nálgast á heimasíðu alþjóðaskrifstofu háskólastigsins http://www.ask.hi.is/.

