Skiptinám
Háskólinn í Reykjavík er í samstarfi við háskóla í Evrópu innan Erasmus-áætlunarinnar, Nordplus-áætlunarinnar og er jafnframt með tvíhliða samninga við háskóla utan Evrópu. Með þessum samningum gefst nemendum kostur á að taka eina eða tvær annir við samstarfsskóla HR og fá námið í gestskólanum metið sem hluta af námi sínu við Háskólann í Reykjavík.
Skiptinám í samstarfsskóla HR
Nemendur sem fara í skiptinám í samstarfsskóla HR greiða skólagjöld í HR en þurfa ekki að greiða skólagjöld við gestaskólann. Til að geta farið í skiptinám þurfa nemendur að hafa lokið fyrsta árinu eða 60 ECTS einingum þegar að skiptinámið hefst. Nemendur sem óska eftir að fara í þá samstarfsskóla sem HR er með Erasmus- eða Nordplus samninga við geta sótt um styrk fyrir skiptináminu. Styrknum er ætlað að koma til móts við þann kostnað sem fylgir því að flytja og búa í öðru landi og dregst ekki frá námslánum.
CONAHEC netið
Skiptinám CONAHEC er jafnt fyrir nemendur í grunn og framhaldsnámi. Nemendur geta sótt nám í öllum deildum háskólanna sem um ræðir. Einnig er unnt að komast í starfsnám. Sjá nánar hér.

