Nemendur Háskólans í Reykjavík geta sótt um Erasmus styrk til að fara í starfsnám.
Ekki þarf að vera samningur á milli heimaskóla og gestastofnunar (fyrirtækis, háskóla, stofnunar). Erasmus starfsnám - umsókn fyrir skólaárið 2012-13.
Hægt er að nýta ýmsar vefsíður til að leita að starfsnámsmöguleikum, t.d:
Ráðlegt er að hefja undirbúning að umsókn a.m.k. hálfu ári áður en umsóknarfrestur rennur út. Gott er að ráðfæra sig við alþjóðafulltrúa og kennara varðandi val á starfsnámi. Einnig viljum við benda á að mörg stórfyrirtæki bjóða nemendum uppá að sækja um starfsnám á vefsíðum þeirra, við hvetjum nemendur því til þess að skoða stórfyrirtæki víðsvegar um heiminn og sækja beint um starfsnám þar.
Þegar nemandi er komin með vilyrði fyrir starfsnámi hjá ákveðnu fyrirtæki, stofnun eða hjá háskóla, þarf að skila inn umsókn til alþjóðaskrifstofu HR.
Með umsókn þarf að skila:
- Starfsnámssamningi. Starfsnámssamningur er samningur á milli stúdents, heimaskóla og móttökuaðila. Í samningnum er tilgreint í hverju starfsnámið muni felast og hvaða færni stúdentinn á að öðlast með því. Ef stúdent uppfyllir skilyrði samningsins er það vottað af gestastofnun og heimaskóli er skuldbundinn til að meta starfsnámið sem hluta af námi. Ef starfsnámið er ekki metið til eininga þarf sérstaklega að tilgreina það í skírteinisviðauka (diploma supplement) við útskrift. Nánari upplýsingar um þetta fást hjá alþjóðafulltrúa.
- Námsferli. Nemendur þurfa ekki að hafa lokið 60 ECTS einingum eins og þegar um skiptinám er að ræða.
Samningur og fyrri greiðsla styrks
- Áður en nemandi fer utan er gengið frá samningi vegna styrksins. Í „Erasmus Student Charter“ sem er fylgiskjal með samningnum koma fram réttindi og skyldur nemandans.
- Nemandi fær greidd 70% af styrknum fyrir brottför.
Upphæð styrks skólaárið 2012-2013 (getur breyst á milli ára)
- 500 € ferðastyrkur
- 500 € á mánuði í uppihaldsstyrk (lágmarksdvöl er 3 mánuðir).
- Styrkurinn hefur ekki áhrif á greiðslur frá LÍN
Uppgjör og seinni greiðsla styrks
- Að námsdvöl lokinni þarf nemandi að fylla út rafræna lokaskýrslu.
- Nemandi þarf að skila inn staðfestingu frá gestastofnun þess efnis að dvölin hafi verið í samræmi við starfsnámssamninginn.
- Nemandi fær 30% af styrknum sé gengið frá ofangreindum atriðum.
- Hafi nemandi ekki sinnt starfsnáminu á meðan á dvölinni stóð eða komið fyrr heim en til stóð getur komið til endurgreiðslu á styrknum í heild eða að hluta til.

