Atvinnuþjónusta HR
Atvinnuþjónusta HR byggir á erlendri fyrirmynd (e. career services), sem starfrækt er við fjölmarga erlenda háskóla.
Atvinnuþjónustan hefur það að markmiði að greiða leið nemenda og fyrirtækja að árangursríkum ráðningum, að nemendur HR finni spennandi og krefjandi störf og að íslensk fyrirtæki og stofnanir finni rétta starfsmanninn úr hópi nemenda HR. Á hverju ári útskrifast um 600 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík með Diploma, BA, BSc, MSc eða MBA gráðu.
| Upplýsingar fyrir fyrirtæki - radning@ru.is | Upplýsingar fyrir nemendur - atvinna@ru.is |
|
Við hjá Deloitte höfum ráðið marga starfsmenn frá Háskólanum í Reykjavík, bæði úr lagadeild og viðskiptadeild, og erum afar ánægð með þetta fólk og með samstarfið við HR. Stofnun Atvinnuþjónustu er enn eitt merkið um framsækni Háskólans í Reykjavík og sterk tengsl hans við atvinnulífið. Margrét Sanders |

