Þjónusta við fyrirtæki
Ef þitt fyrirtæki eða stofnun er í leit að starfskrafti (í fullt starf, hlutastarf eða sumarstarf) bjóðum við þér að snúa þér til atvinnuþjónustu HR. Auglýsing er fyrirtækjum að kostnaðarlausu.

Tvær þjónustuleiðir eru í boði fyrir auglýsingar um framtíðarstörf:

  • Ráðning: atvinnuþjónustan starfrækir gagnagrunn þar sem ferilskár og áhugasvið nemenda eru skráð.  Fjölmargir nemendur hafa einnig heimilað atvinnuþjónustunni að nýta aðrar upplýsingar, s.s námsferil og umsagnir kennara, við upplýsingagjöf til fyrirtækja. Með  þessum upplýsingum getur atvinnuþjónustan tekið saman lista með ítarlegum upplýsingum og umsögnum um heppilega umsækjendur fyrir starfið sem laust er.
  • Auglýsing: Fyrirtækjum stendur einnig til boða að auglýsa laus störf á vefsvæði atvinnuþjónustunnar. Vefsvæðið er aðgangsstýrt, en opið öllum nemendum HR.

Hverjir eru kostirnir við að ráða beint frá HR?

  • Tryggt er að sá sem þú ræður býr yfir nýjustu þekkingunni á sínu sviði
  • atvinnuþjónustan veitir góðar upplýsingar um umsækjendur, oft mun sérhæfðari en hægt er að fá með öðrum leiðum
  • atvinnuþjónusta HR er hagkvæm leið og einföld.

 

 Nánari upplýsingar um atvinnuþjónustuna veitir Gréta Matthíasdóttir náms- og starfsráðgjafi í síma 599 6306 eða á netfanginu gretam@ru.is

 

 

 



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica