Starfsreynsla HR-inga
Starfsreynsla þeirra sem útskrifast úr HR er umtalsverð. Nemendur í tækni-og verkfræðideild hafa oft lokið prófi úr iðngreinum áður en þeir hefja nám við skólann. Nemendur í dagskóla hafa einnig oft starfað á vinnumarkaði í lengri eða skemmri tíma áður en að nám hefst. Þeir nemendur sem stunda Háskólanám með vinnu eru almennt í starfi hjá fyrirtækjum og stofnunum og hafa oft verið lengi á vinnumarkaði áður en námið hefst.
Flestir nemendur HR stunda vinnu á sumrin og með skóla sem tengist námi þeirra í HR, þetta auðveldar þeim innkomu á vinnumarkað að námi loknu. Sem dæmi má nefna að dagskólanemendur í grunnnámi í viðskiptafræði hafa að jafnaði 2 ára starfsreynslu og þeir sem stunda háskólanám með vinnu að meðaltali 12 ára reynslu þegar þeir hefja nám við HR.

