Þjónusta við nemendur

Hlutverk Atvinnuþjónustu HR er að aðstoða núverandi og fyrrverandi nemendur skólans við innkomu á vinnumarkaðinn eða við það að finna nýtt starf sem hæfir þeirri menntun sem þeir hafa aflað sér í HR. Góður undirbúningur er lykillinn að því að fá starf við hæfi að námi loknu. Atvinnuþjónustan aðstoðar nemendur við þennan undirbúning, en veitir einnig beina þjálfun í öllum þáttum umsóknarferlisins, bæði í hópum og á einstaklingsgrundvelli.

Miðlun starfa

Ef þú hefur áhuga á að vera í hópi þeirra nemenda sem skoðaður er í tengslum við þau tækifæri sem koma á borð atvinnuþjónustunnar þarft þú að gera eftirfarandi:

  • Skrá þig í gagnagrunn atvinnuþjónustunnar.  Nemendur noti sama notendanafn og lykilorð og að innraneti.  Passa þarf að skrá allar upplýsingar nákvæmlega og skammstafa ekki heiti á fyrirtækjum, skólum, prófgráðum o.s.frv.
  • Hafa ber í huga að mikið af störfum sem koma inn á borð atvinnuþjónustunnar eru ekki auglýst á vefnum, heldur einungs leitað í gagnagrunninum að heppilegri samsvörun. 

Gagnagrunnur

Einstaklingsráðgjöf

Sem nemandi eða fyrrum nemandi við HR gefst þér kostur á að hitta ráðgjafa atvinnuþjónustunnar og fá leiðsögn varðandi atvinnuleitina, t.d. í gerð ferilskrár og kynningarbréfa, viðtalstækni og aðra þætti umsóknarferlisins. Einnig til að ræða almennt um vinnumarkaðinn og finna út hvar áhuginn liggur. Atvinnuþjónustan getur, í samstarfi við námsráðgjöf, veitt ráðgjöf varðandi áhugasviðsgreiningar. Þá getur atvinnuþjónustan að einhverju marki veitt upplýsingar um möguleika á framhaldsnámi og hverju það getur skilað í starfsframa.

Vinnustofur

Vinnustofur verða haldnar reglulega og munu áherslur og framboð þeirra ráðast af eftirspurn. Meðal efna sem tekin verða fyrir má nefna:

  • Gerð ferilskrár og kynningarbréfa
  • Undirbúningur fyrir atvinnuviðtal
  • Annað

Og hvað viltu fá í laun? - Fyrirlestur Aðalsteins Leifssonar:


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica