Þjálfun og ráðgjöf
Einstaklingsráðgjöf
Sem nemandi eða fyrrum nemandi við HR gefst þér kostur á að hitta ráðgjafa atvinnuþjónustunnar og fá leiðsögn varðandi atvinnuleitina, t.d. í gerð ferilskrár og kynningarbréfa, viðtalstækni og aðra þætti umsóknarferlisins. Einnig til að ræða almennt um vinnumarkaðinn og finna út hvar áhuginn liggur. Atvinnuþjónustan getur, í samstarfi við námsráðgjöf, veitt ráðgjöf varðandi áhugasviðsgreiningar. Þá getur atvinnuþjónustan að einhverju marki veitt upplýsingar um möguleika á framhaldsnámi og hverju það getur skilað í starfsframa.
Vinnustofur
Vinnustofur verða haldnar reglulega og munu áherslur og framboð þeirra ráðast af eftirspurn. Meðal efna sem tekin verða fyrir má nefna:
- Gerð ferilskrár og kynningarbréfa
- Undirbúningur fyrir atvinnuviðtal

