Bókasafnið frá A til Ö

A B C D E F  G  H  I  J  K  L  M  N  O  P  R  S  T  U  V  W  X  Y  Þ  Æ  Ö 

A
Aðstaða

  • Vinnuborð fyrir hópa og einstaklinga, sum með tölvum. 
  • Tölvur fremst í safni til skammtímanota vegna uppflettinga í bókasafnskerfinu Gegni og útprentunar. 
  • Skanni.
  • Prentari og litaprentari.
  • SPSS á öllum tölvum safnsins.
  • Vista má Word-skjöl sem PDF (Save as).
  • Ljósritunarvél með matara og skanna (ljósritunarkort seld í móttöku skólsns).

 

Aðstoð við heimildaleitir

Bókasafns- og upplýsingafræðingur er með fasta viðtalstíma vegna þessa milli 13:00 - 16:00 alla virka daga. Á álagstímum getur verið nauðsynlegt að bóka tíma. Allar frekari upplýsingar á heimasíðunni.

 

Alumni
Útskrifuðum nemendum stendur til boða að kaupa útlánakort. Kortin kosta 2.500 krónur og gilda í ár.

 

B
Bókasafn og upplýsingaþjónusta Háskólans í Reykjavík

Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR (BUHR) var opnað formlega í janúar 1999 af Birni Bjarnasyni þáverandi menntamálaráðherra. Frá upphafi hefur það verið yfirlýst stefna stjórnenda að nýta upplýsingatæknina sem mest við uppbyggingu safnsins og er það að stærstum hluta rafrænt. Árið 2003 hófst rekstur Miðstöðvar Evrópuupplýsinga (EDC) á safninu. Miðstöðin var grundvölluð á samningi milli Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Evrópuréttarstofnunar HR. Frá sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík árið 2005, hefur BUHR starfrækt bókasafn á tveimur stöðum. Lengst af á Höfðabakka og í Ofanleiti, en frá 2010 í Ofanleiti og í Nauthólsvík. Í Nauthólsvík er BUHR staðsett í Úranusi á 1. hæð. Fyrsti forstöðumaður safnsins var Sólveig Þorsteinsdóttir, 1998 - 2001, en forstöðumaður BUHR frá 2001 er Guðrún Tryggvadóttir 

 

Bókasafnskerfi
Í bókasafnskerfi BUHR, Gegni er hægt að fá upplýsingar um hvað er til á prenti, bæði hjá BUHR og í öðrum íslenskum söfnum og kanna hvort gögn eru inni á söfnum eða í útláni. Með innskráningu geta notendur fengið upplýsingar um eigin útlán, framlengt þau og tekið frá efni. Þegar notandi hefur skráð sig inn kemur upp nýr flipi í Gegni, Mínar síður. Starfsfólk í afgreiðslu BUHR gefur frekari upplýsingar um innskráningu í Gegni.

 

Bókasafnskort
Stúdentar og starfsfólk Háskólans í Reykjavík þurfa ekki bókasafnskort. Fyrrverandi nemendur þurfa að kaupa kort vilji þeir fá lánuð gögn úr safnkosti BUHR og kostar árskort kr. 2.500

 

Bóksala
Bóksala stúdenta rekur verslun í Háskólanum í Reykjavík. Þar eru seldar kennslubækur vegna námskeiða sem kennd eru í HR, auk ritfanga og fleira.

 

BUHR = Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR
Stytt heiti.

 

Efst á síðu

 

C
Cybrarian

Vefspjall við bókasafns- og upplýsingafræðing. Almennar fyrirspurnir og aðstoð vegna heimildaleita og heimildaskráningar. Cybrarian er „á línunni" og svarar um hæl.

 

D
Drykkir
Vatn í flösku eða lokuðum brúsa er í lagi. Sömuleiðis kaffi í máli með loki. Munið að ganga frá tómum ílátum!!

 

F
Facebook
Bókasafn HR er á Facebook - facebook.com/bokasafn

 

Farsímar/GSM

Símtöl eru bönnuð á bókasafninu og er starfsfólk beðið að benda gestum á það þegar þörf krefur.  

Fartölvur
Hægt að nota fartölvur í rými safnsins svo lengi sem notkun þeirra truflar ekki aðra.

 

Fjaraðgangur
Hægt er að nota gagnasöfn BUHR sem sett eru upp á tölvum skólans utan háskólasvæðisins. Einnig gagnasöfn í landsáskrift erlendis frá. Nánari upplýsingar eru á gagnasafnsíðu BUHR. Ekki þarf að nota fjaraðganginn til að nota gagnasöfn og tímarit sem læst eru með lykilorðum. Upplýsingar um þau er að finna á vefsíðunni um læst gagnasöfn.

Athugið að gagnasöfnum í áskrift fylgir tákn sem segir til um hvernig aðgangi er háttað:
[+] = aðgengilegt frá neti HR (IP tölur) og fjaraðgangur
[*] = aðgangsorð, ekki þarf að nota fjaraðgang
[#] = landsáskrift, allar tölvur á Íslandi, og fjaraðgangur erlendis frá
[~] = aðgengilegt frá neti HR (IP tölur)
[!] = einungis aðgengilegt í bókasafninu

Þegar heimildaforritið RefWorks er notað utan HR-nets þarf  að slá inn svokallaðan Group Code hann er RWREYKJAVIKU

 

Flokkunarkerfi
BUHR flokkar allt efni á prenti og raðar í hillur samkvæmt flokkunarkerfi Deweys (The Dewey Decimal Classification System (DDC)). Upplýsingar um flokkstölu er að finna í Gegni þegar staðsetning er skoðuð (dálkurinn raðtákn). Yfirlit yfir helstu flokka koma fram á hillum í safni.

 

Frátektir
Þeir sem hafa skráð sig í Gegni geta sjálfir tekið frá bækur sem eru í útláni. Tilkynning er send í tölvupósti þegar frátekinni bók er skilað á safnið. Fráteknar bækur eru geymdar í afgreiðslu BUHR í viku frá því lánþega er send tilkynning.

 

Fyrirspurnir
Hafið samband ef þið hafið spurningar, athugasemdir eða tillögur sem þið viljið koma á framfæri. Sendið okkur póst: bokasafn@hr.is eða hringið í afgreiðslu bókasafnsins í síma 599 6234. Einnig býður BUHR uppá vefspjall - Cybrarian, bókasafns- og upplýsingafræðingur er „á línunni“ og svarar um hæl.

 

G
Gagnasöfn

Öllum er heimilt að nota gagnasöfn sem BUHR kaupir í áskrift úr tölvum BUHR. Annar aðgangur er mismunandi og fer eftir samningum safnsins við útgefendur. Aðgangur getur verið bundinn við aðgangsorð, við allar tölvur Háskólans í Reykjavík (HR-net) eða allar tölvur á Íslandi. Athugið að gagnasöfnum í áskrift fylgir tákn sem segir til um hvernig aðgangi er háttað:
[+] = aðgengilegt frá neti HR (IP tölur) og fjaraðgangur
[*] = aðgangsorð, ekki þarf að nota fjaraðgang
[#] = landsáskrift, allar tölvur á Íslandi, og fjaraðgangur erlendis frá
[~] = aðgengilegt frá neti HR (IP tölur)
[!] = einungis aðgengilegt í bókasafninu

 

Greinar
BUHR er áskrifandi að fjölmörgum gagnasöfnum á fræðasviðum HR. Þar er m.a. hægt að nálgast fjöldann allan af tímaritsgreinum, margar þeirra hafa birst í fræðilegum og ritrýndum tímaritum. Oft er allur texti greina aðgengilegur. Skoðið lista yfir gagnasöfn í áskrift: Gagnasöfn. Hægt er að slá heiti tímarits upp í tímaritalista og athuga hvort BUHR kaupir það í áskrift: Tímarit og tímatitsgreinar . Þar er einnig hægt að leita eftir titlum erlendra tímaritsgreina.

 

GSM/farsímar
Símtöl eru bönnuð á bókasafninu og er starfsfólk beðið að benda gestum á það þegar þörf krefur. 

 

Efst á síðu

 

H
Heimildaleitir
Bókasafns- og upplýsingafræðingur er með fasta viðtalstíma vegna heimildaleita alla virka daga. Á álagstímum getur verið nauðsynlegt að bóka tíma. Allar frekari upplýsingar veitir Sara Stefánsdóttir sarastef@hr.is s. 599 6235

 

Heimildaskráning
RefWorks er veflægt tól í boði BUHR, sem gerir notendum kleift að halda utan um heimildir sínar, vinna með þær í texta og útbúa heimildaskrá samkvæmt skilgreindum stöðlum á borð við APA eða kröfum einstakra tímarita. Hægt er að skrá upplýsingar um heimildir í RefWorks, t.d. bækur og skýrslur og önnur prentgögn, og flytja upplýsingar um rafræn gögn beint  inn úr gagnasöfnum. 

 

Heimilisföng
Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR (BUHR)
í Úranusi
Menntavegur 1, Nauthólsvík
101 Reykjavík

Sími: 599 6234 (afgreiðsla og útlán)
Fax: 599 6201
Netfang: bokasafn@hr.is

 

Hópvinnuherbergi
Hópvinnuherbergi eru dreifð um húsnæði háskólans og tengjast ekki bókasafninu þar.


Höfundaréttur

Sjá almenna umfjöllun á rafræna bókasafninu: Um höfundarétt

 

I

Internet
Aðilum utan HR sem heimsækja safnið býðst aðgangur að netinu og gagnasöfnum í áskrift BUHR á afgreiðslutíma. Vinsamlegast hafið samband við starfsmann í afgreiðslu til að fá frekari upplýsingar.

 

L
Lán

Útlánstími bóka er að öðru jöfnu 4 vikur. Fráteknar bækur eru geymdar fyrir lánþega í viku frá því honum berst tilkynning um að bók hafi verið skilað. Flestar bækur eru í opnum aðgangi. Upplýsingar um efni á prenti í HR og á öðrum íslenskum söfnum er að finna í bókasafnskerfinu Gegni. Fáið aðstoð í afgreiðslunni ef með þarf.

 

Lesstofur
Í bókasafninu er gott lesrými sem stendur öllum nemendum HR til boða. Gildir þar fyrirkomulagið „fyrstir koma, fyrstir fá“, en óheimilt er að taka frá borð. Starfsfólki er heimilt að rýma borð sem hafa staðið ónotuð lengur en klukkustund. Áhersla er lögð á að það ríki friður og ró á bókasafninu og að nemendur geti einbeitt sér að náminu án truflunar frá símhringingum og skvaldri. Heimilt er að nota fartölvur á meðan gestir gera ekki athugasemdir við það. Í safninu gilda almennar umgengnisreglur HR varðandi meðferð matar og drykkjar: Enginn matur er leyfilegur, en heimilt er að vera með kaffi og vatn í lokuðu íláti.

 

Ljósritun
Ljósritunarvél er í bókasafninu. Hægt er að kaupa kort í  vélina í aðalmóttöku skólans.

 

Lokaritgerðir
Eintak af öllum lokaritgerðum er varðveitt hjá BUHR. Eintökin eru ýmist geymd í Námsbókasafni eða geymslu og eru aðeins lánuð til lestrar á safninu. Námsritgerðir HR eru leitarbærar í bókasafnskerfinu Gegni. Undantekning frá þessari reglu eru lokaritgerðir nemenda í MBA námi í viðskiptadeild. Frá og með 2010 eru eintök lokaritgerða einnig varðveitt í varðveislusafni íslenskra háskólabókasafna, Skemmunni.

 

Lykilorð
Upplýsingar um lykilorð að gagnasöfnum í áskrift BUHR er að finna á vefsíðu gagnasafna. Athugið að samkvæmt samningum BUHR við eigendur og framleiðendur gagnasafna eru lykilorðin eingöngu ætluð stúdentum og starfsmönnum Háskólans í Reykjavík og því er með öllu óheimilt að afhenda þau aðilum utan HR.

 

Efst á síðu

 

M
Matur
Það er EKKI leyfilegt að borða á bókasafninu. Starfsfólk safnsins er hvatt til að benda gestum á þessa reglu, sem er í samræmi við almennar umgengnisreglur Háskólans í Reykjavík.

 

Mínar síður - í Gegni
Allir nemendur og kennarar HR sem eru skráðir inn í bókasafnskerfi BUHR, Gegni, hafa aðgang að flipanum „Mínar síður“  á vefsetrinu gegnir.is Notendur skrá sig á heimasíðu Gegnis, kennitölu sína í efri reitinn (númer), og síðan fjórar síðustu tölurnar í kennitölunni í seinni reitinn (lykilorð). Ráðlegt er að breyta lykilorðinu að innskráningu lokinni. Hafið samband við afgreiðslu BUHR ef vandamál koma upp við innskráningu.

Að innskráningu lokinni er mögulegt að:

  • Skoða efni í útláni
  • Endurnýja útlán
  • Taka frá efni (frátektir)
  • Sjá sögu útlána (síðustu 100)
  • Panta millisafnalán


Millisafnalán

 

N

Námsbækur
Námsbókasafn er safndeild hjá BUHR og eru bækur merktar því í Gegni staðsettar í afgreiðslu safnsins. Í Námsbókasafni er eintak af flestum kennslubókum í grunnnámi á yfirstandandi misseri, auk valinna bóka í framhaldsnámi. Bækurnar eru aðeins lánaðar til afnota á safni.

 

Námsefni
Allir kennarar við Háskólann í Reykjavík geta sent beiðni til BUHR vegna kaupa á efni sem þeir þurfa að nota í námskeiðum sínum. Auk eintaka af kennslubókum eru ítarefnisrit staðsett í Námsbókasafni til að tryggja nemendum sem jafnastan aðgang að þeim. Kennarar geta einnig beðið um að bækur úr safninu séu staðsettar í Námsbókasafni. Kennarar geta ákveðið hvernig útlánum á efni þeirra í Námsbókasafni er háttað. Annað efni sem kennarar leggja inn í Námsbókasafn eru greinar, tilviksathuganir (e. case), dómar o.fl. Sjá nánar á rafræna bókasafninu: Námsbókasafn

 

Nesti
Það er EKKI leyfilegt að borða á bókasafninu. Starfsfólk er hvatt til að minna gesti á þessa reglu, sem er í samræmi við almennar umgengnisreglur Háskólans í Reykjavík.

 

O

Orðabækur
BUHR á ágætt úrval orðabóka. Orðabækur eru hluti af handbókasafni BUHR og eru ekki lánaðar út nema samkvæmt sérstöku samkomulagi við starfsmann í afgreiðslu. BUHR á einnig nokkurn forða orðabóka á rafrænu formi, sem við mælum með að fólk kynni sér. Rétt er að benda sérstaklega á að BUHR kaupir áskrift fyrir starfsmenn og nemendur HR að öllum veforðabókum á snara.is.

 

R

Rafræn gögn - rafrænt bókasafn
BUHR leggur sérstaka áherslu á að nýta möguleika upplýsingatækninnar í starfsemi sinni og er áhersla lögð á rafræn gögn og rafrænt bókasafn. Liður í því er að bjóða viðskiptavinum aðgang að fjölbreyttu efni á rafrænu formi og er stefna safnsins að stúdentar og starfsmenn HR hafi aðgang að rafrænu efni á sínum fræðasviðum sambærilegan við það sem best gerist í alþjóðlegu háskólasamfélagi. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu rafræna bókasafnsins: Gagnasöfn

 

RefWorks, heimildaskráningarforrit
RefWorks er veflægt tól í boði BUHR, sem gerir notendum kleift að halda utan um heimildir sínar, vinna með þær í texta og útbúa heimildaskrá samkvæmt skilgreindum stöðlum á borð við APA eða kröfum einstakra tímarita. Hægt er að skrá upplýsingar um heimildir í RefWorks, t.d. bækur og skýrslur og önnur prentgögn, og flytja upplýsingar um rafræn gögn beint  inn úr gagnasöfnum. 

 

Ritgerðir
Eintak af öllum lokaritgerðum er varðveitt hjá BUHR. Eintökin eru ýmist geymd í Námsbókasafni eða geymslu og eru aðeins lánuð til lestrar á safninu. Námsritgerðir HR eru leitarbærar í bókasafnskerfinu Gegni. Undantekning frá þessari reglu eru lokaritgerðir nemenda MBA námi í viðskiptadeild. Frá og með 2010 eru eintök lokaritgerða einnig varðveitt í varðveislusafni íslenskra háskólabókasafna, Skemmunni.

 

S

Safnkostur
Hlutverk BUHR er að styðja og efla sköpun og miðlun þekkingar við HR með fjölbreyttri þjónustu við stúdenta, kennara og rannsóknarfólk. Efniskaup safnsins taka mið af því. BUHR safnar eingöngu efni á fræðasviðum HR og stærstur hluti safnkosts er á rafrænu formi. Einnig er safnað nokkru efni á prenti og vandað til vals á því í samráði við fagdeildir. Safnkostur á prenti mætir einkum þörfum nemenda í grunn- og meistaranámi. Safnkosturinn er einkum á ensku og íslensku.

 

Saga
Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR (BUHR) var opnað formlega í janúar 1999 af Birni Bjarnasyni þáverandi menntamálaráðherra. Frá upphafi hefur það verið yfirlýst stefna stjórnenda að nýta upplýsingatæknina sem mest við uppbyggingu safnsins og er það að stærstum hluta rafrænt. Árið 2003 hófst rekstur Miðstöðvar Evrópuupplýsinga (EDC) á safninu. Miðstöðin var grundvölluð á samningi milli Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Evrópuréttarstofnunar HR. Frá sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík árið 2005, hefur BUHR starfrækt bókasafn á tveimur stöðum. Lengst af á Höfðabakka og í Ofanleiti, en á vormisseri 2010 í Ofanleiti og í Nauthólsvík. Eftir flutning í Nauthólsvík er BUHR staðsett til í Úranusi á 1. hæð. Fyrsti forstöðumaður safnsins var Sólveig Þorsteinsdóttir, 1998 - 2001, en forstöðumaður BUHR frá 2001 er Guðrún Tryggvadóttir 

 

Skanni
Skanni er í ljósritunarvél bókasafnsins.

 

Skil á gögnum
Skiladagur gagna kemur fram á kvittun sem fylgir útlánum. Almennt gildir að útlánstíma bóka er 4 vikur.

 

Starfsfólk
Fastir starfsmenn BUHR eru 7 í rúmlega 6 stöðugildum, 6 bókasafns- og upplýsingafræðingar og 1 bókavörður. Frekari upplýsingar um einstaka starfsmenn er að finna á heimasíðu safnsins. Auk fastra starfsmanna aðstoða stúdentar við afgreiðslu og uppröðun á safninu.

 

Efst á síðu

 

T
Tímarit

BUHR er áskrifandi að rúmlega 20.000 rafrænum tímaritum á fræðasviðum HR. BUHR kaupir einkum íslensk tímarit á fræðasviðum HR á prenti, og er þeim raðað í stafrófsröð í hillur fremst í safninu. Tímaritshefti eru EKKI lánuð út. Upplýsingar um alla tímaritstitla í áskrift BUHR er að finna í tímaritalista safnsins: Tímarit og tímaritsgreinar

 

Twitter
Bókasafn HR er á Twitter - twitter.com/bokasafn


 

U

Útlán
Útlánstími bóka er að öðru jöfnu 4 vikur. Fráteknar bækur eru geymdar fyrir lánþega í viku frá því honum berst tilkynning um að bókinni hafi verið skilað. Flestar bækur eru í opnum aðgangi. Upplýsingar um efni á prenti í HR og á öðrum íslenskum söfnum er að finna í bókasafnskerfinu Gegni. Fáið aðstoð í afgreiðslunni ef með þarf.

 

Útlán í vanskilum
Tilkynningar um vanskil (rukk) eru sendar í tölvupósti. Útlánstími gagna kemur fram á kvittun lánþega og einnig geta lánþegar aflað sér upplýsinga um hann með því að nota „Mínar síður“ í Gegni.  Virði lánþegi ekki útlánstíma og sinni ekki tilkynningum um vanskil er heimilt að taka hann af lánþegaskrá þar til útistandandi gögnum hefur verið skilað. 

 

V

Vinnuherbergi
Hópvinnuherbergi eru dreifð um húsnæði HR og tengjast ekki bókasafninu þar.

 

Efst á síðu





 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica